Heimsfrumsýning á íslenska dans- og tónverkinu Aiõn Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 23. maí 2019 08:00 Hluti af dansflokknum spókar sig á götum Gautaborgar milli æfinga. ÍD
Dans- og tónverkið Aiõn eftir Ernu Ómarsdóttur danshöfund og Önnu Thorvaldsdóttur tónskáld verður heimsfrumsýnt á Point-tónlistarhátíðinni í Gautaborg á morgun, 24. maí. Dansarar Íslenska dansflokksins og hljóðfæraleikarar Sinfóníuhljómsveitar Gautaborgar renna saman í eitt í túlkun þess. Aiõn er mikið ástríðuverkefni þeirra Ernu og Önnu og er innblásið af abstrakt hugsun um tímann og ferðalag milli vídda. Þær stöllur bjóða áhorfendum upp á töfrandi heim þar sem tónlist og dans mætast á óvanalegan hátt. Dansflokkurinn hefur fengið til liðs við sig búningahönnuðinn Agnieszka Baranowska og kvikmyndagerðarmennina Pierre-Alain Giraud og Valdimar Jóhannsson. Vídeóverki, sem þeir Pierre-Alain og Valdimar hafa búið til fyrir Aiõn, verður varpað á veggi tónlistarhússins meðan flutningur dans- og tónverksins fer fram. Aiõn er samstarfsverkefni Íslenska dansflokksins, Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Sinfóníuhljómsveitar Gautaborgar. Íslendingar fá tækifæri til að upplifa það 1. apríl 2020 þegar Íslenski dansflokkurinn og Sinfóníuhljómsveit Íslands flytja verkið í Eldborg í Hörpu. (Þetta er ekki aprílgabb!)Á æfingu á Aiõn.Gunnar Freyr Steinsson
Birtist í Fréttablaðinu Dans Mest lesið Stjörnulífið: Heimir Hallgríms ástfanginn í Suður Frakklandi Lífið Hildur Vala og Kjartan keyptu raðhús í Fossvogi Lífið Sara Davíðs fann ástina í örmum flugstjóra Lífið Rúrik og Pétur Jóhann þeir frægustu sem hún hefur hitt Lífið Myndaveisla: Almennilegt rigningardjamm á Kótelettunni Tónlist Lengi lifir í gömlum glæðum Lífið Tobey Maguire er á landinu Bíó og sjónvarp Logi Bergmann var tekinn Lífið „Hann er fullkominn eins og hann er“ Lífið 50+: Neikvæð líkamsvitund algengari Áskorun Fleiri fréttir Kanónur með listræna þrennu á Flateyri „Leiðin verður að vera óviss svo vel sé“ „Ég lofa miklu blóði“ Gera grín að bransanum með „virtustu verðlaunum heims“ Fjöldamet á stærstu listasýningu í sögu Hornafjarðar „Hluti af heild sem við skiljum ekki“ Magnús Geir endurráðinn þjóðleikhússtjóri „Ef ég væri einmana myndi ég ganga í Sjálfstæðisflokkinn“ Myndaveisla: Níu líf of stórkostleg fyrir eftirsjá Þau eru tilnefnd til Ísnálarinnar í ár Hvað eigum við að kalla eiginmann forseta? Sjá meira