Keppni í formúlunni lauk í gær og það fór vel á því að sá allra besti, Lewis Hamilton, tryggði sér öruggan sigur í síðasta kappakstrinum. Sigurinn í gær var númer 84 á ferlinum, hann vann yfirburðasigur á helsta keppinaut sínum, liðsfélaganum hjá Mercedes Valtteri Bottas. Hamilton fékk 413 stig, 87 stigum meira en Finninn. Sigurinn í gær var hans ellefti á keppnistíðinni og heimsmeistaratitilinn sá sjötti.
„Ótrúlegt keppnistíð, ég bjóst aldrei við þessu. Við áttum í basli framan af en náðum að bæta okkur. Órúlegt ár, frábær liðsheild og held að ég hafi hækkað rána aðeins. Ég varð að gera það því ungu ökumennirnir og Bottas voru allir að bæta sig og ég varð því að gera það líka“, sagði Hamilton eftir sigurinn.
Charles Leclerc varð í þriðja sæti í Abu Dabi kappakstrinum í gær og hann endaði í fjórða sæti í stigakeppninni, fékk 264 stig og skákaði félaga sínum í Ferrariliðinu, Sebastian Vettel sem endaði fimmti með 240 stig.
„Ég er ánægður með að komast á verðlaunapall en bilið á milli okkar hjá Ferrari og Mercedes er of mikið og ég get ekki verið ánægður með það. En þegar ég lít til baka, sjö sinnum fremstur á ráslínu, tíu sinnum á palli og tveir sigrar er ég sáttur. Ég bjóst ekki við þessu á mínu fyrsta ári hjá Ferrari. Það hafa skipst á skin og skúrir og mín stærsta áskorun er að læra af mistökunum og koma sterkari til leiks á næstu keppnistíð“, sagði hinn 22 ára Charles Leclerc sem sigraði í Austurríki og í Singapúr.
Það má sjá umfjöllun Arnars Björnssonar um lokakeppni tímabilsins hér fyrir neðan.