Nyrsta hátíð Sónar fjölskyldunnar, Sónar Reykjavík, verður haldin í Reykjavík, dagana 25. - 27. apríl næstkomandi. Hátíðin verður á ný þriggja daga hátíð og býður upp á ýmsar nýjungar fyrir bæði auga og eyru. Í dag bætast við 19 nöfn á dagskrána og er hún þar með fullbókuð en á hátíðinni í ár munu yfir 60 listamenn koma fram en þetta kemur fram í tilkynningu frá Sónar Reykjavík.
Áður höfðu m.a. Richie Hawtin, Orbital, Little Dragon, FM Belfast, og Jon Hopkins verið tilkynntir til leiks en nú bætist við Íslandsvinurinn og nýjasta r&b stórstirnið, DAWN, og þá mun eitt heitasta nafnið í bresku grime senunni stíga á stokk á Red Bull Music sviðinu í Hörpu í apríl, Octavian.
Þessi ungi rappari er að verða eitt stærsta nafnið í breska rappheiminum, en nýlega endaði hann á toppi lista BBC, Future Sound of 2019, en það er listi fagfólks úr tónlistarbransanum yfir þá listamenn sem þykja líklegastir til að slá í gegn á árinu. Þá má einnig nefna að, Drake, er meðal stærstu aðdáenda Octavian og hefur unnið nokkuð með honum.
Íslenska hip-hop senan mun heldur ekki sitja á hakanum, því Flóni, Logi Pedro og Huginn bætast nú við dagskrána.
Ofan á áður tilkynnta listamenn bætast nú við m.a.þýska ambient techno goðsögnin GAS, en hann mun koma fram á sérstökum opnunartónleikum hátíðarinnar í Kaldalóni. Biggi Veira mun svo keyra Silfurberg í brjálað stuð með dynjandi klúbbasetti í sérstöku GusGus dj setti, og í sama sal mun Janus Rasmussen, annar helmingur Kiasmos, frumflytja efni af nýfæddum sólóferli sínum.
Þá er mikill heiður fyrir Sónar Reykjavík að kynna að stærstu vonarstjörnur landsins í synthapoppi, Vök, munu heiðra gesti hátíðarinnar með tónleikum sínum. Í hinn alræmda kjallara bætast svo við nýjasti meðlimur bbbbbb fjölskyldunnar, Kuldaboli, og fremsti drum & bass hópur landsins, Hausar.
Auk fyrrnefndra listamanna bætast einnig við dagskrána partídýrið Hermigervill, nýstirnið ROKKY, hinn framsækni Good Moon Deer, hávaðasérfræðingurinn Kjartan Holm, hinn áhugaverði teknósení Dynkur, danska elektrógyðjan IDK IDA, og múm og FM Belfast meðlimurinn Örvar Smárason, sem átti eina af bestu plötum síðasta árs, Light is Liquid. Þá er einnig gaman að segja frá því að fyrrverandi GusGus-meðlimurinn President Bongo og bassaleikarinn Óttar Sæmundsen munu flytja verkefið sitt Quadrantes.
Miðasala á hátíðina er í fullum gangi inni á www.sonarreykjavik.com og á www.harpa.is/sonar
Listamenn sem nú eru kynntir til leiks:
DAWN (US)
Octavian (UK)
GAS (DE)
Vök
Biggi Veira - GusGus dj set
Floni
Janus Rasmussen Live (FO)
Logi Pedro
Örvar Smárason
Huginn
Hermigervill
President Bongo & Óttar S.
Kuldaboli
ROKKY
Good Moon Deer
Kjartan Holm
Dynkur
Hausar
IDK IDA (DK)
Áður hafði verið tilkynnt um eftirfarandi listamenn:
Jon Hopkins (UK)
Richie Hawtin (CA)
Little Dragon (SE)
Orbital (UK)
Little Simz (UK)
Objekt (UK)
Kero Kero Bonito (UK)
Avalon Emerson (US)
Yves Tumor (US)
FM Belfast
Fatima Al Qadiri Live (KW)
Bruce b2b Árni (UK/IS)
Prins Póló
Cherrie (SE)
Sinjin Hawke & Zora Jones Live AV (CA/AT)
Caterina Barbieri Live AV (IT)
Auður
Benjamin Damage LIVE (UK)
Aïsha Devi (CH)
JDFR
dj. flugvél og geimskip
JOYFULTALK (CA)
Hildur
upsammy (NE)
GDRN
Exos
ClubDub
Matthildur
Hekla
Alinka (US)
DJ Margeir
kef LAVIK
SiGRÚN
Halldór Eldjárn
Lucius Works Here + Oxxlab (ES)
Áskell
Sólveig Matthildur
Thorgerdur Johanna
Milena Glowacka (PL)
LaFontaine
Fleiri listamenn kynntir til leiks á Sónar og hátíðin orðin fullbókuð
