Enski boltinn

Liverpool steinlá fyrir Napoli | Myndband

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Insigne kemur Napoli í 1-0.
Insigne kemur Napoli í 1-0. vísir/getty
Napoli vann 3-0 sigur á Evrópumeisturum Liverpool í æfingaleik í Edinborg í Skotlandi í dag.

Liverpool vann fyrstu tvo leiki sína á undirbúningstímabilinu, gegn Tranmere Rovers og Bradford City, en hefur tapað þremur af síðustu fjórum leikjum sínum.

Lorenzo Insigne kom Napoli yfir á 17. mínútu. Tólf mínútum síðar bætti Arkadiusz Milik öðru marki við. Napoli var 2-0 yfir í hálfleik.

Á 52. mínútu skoraði Amin Younes þriðja mark Napoli þegar hann fylgdi eftir skoti Insignes sem Simon Mignolet varði. Lokatölur 3-0, Napoli í vil.

Þetta var næstsíðasti leikur Liverpool á undirbúningstímabilinu. Sá síðasti er gegn Lyon á miðvikudaginn.

Á sunnudaginn eftir viku mætir Liverpool svo Manchester City í leiknum um Samfélagsskjöldinn.

Klippa: Napoli 3-0 Liverpool
 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×