Enski boltinn

Mason Mount skein skærast er Chelsea vann Reading í sjö marka leik

Anton Ingi Leifsson skrifar
Chelsea fagna marki í dag.
Chelsea fagna marki í dag. vísir/getty
Chelsea vann 4-3 sigur á Reading er liðin mættust í æfingarleik í dag en mikið fjör var í leiknum og sjö mörk skoruð.

B-deildarliðið Reading komst yfir á þrettándu mínutu er Josh Barrett skoraði en níu mínútum síðar var það miðjumaðurinn Ross Barkley sem jafnaði metin.



Kenedy kom Chelsea yfir fyrir hlé en í upphafi síðari hálfleiksins var það Michael Morris sem jafnaði metin. Þá var komið að hinum unga Mason Mount.

Hann kom Chelsea aftur yfir á 57. mínútu og þremur mínútum síðar var hann aftur á ferðinni er hann kom Chelsea í 4-2. Sam Baldock minnkaði muninn fyrir Reading og lokatölur 4-3.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×