Innlent

Lögregla lýsir eftir Kára

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Mennirnir fengu að gista fangageymslur.
Mennirnir fengu að gista fangageymslur. vísir/vilhelm
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Kára Siggeirssyni, 30 ára. Talið er að hann sé klæddur í svarta úlpu og svartar buxur. Kári er þéttvaxinn, 116 kíló og 174 sentímetrar á hæð, með blágræn augu og mjög stutt, ljós skollitað hár.

Síðast er vitað um ferðir hans við Bríetartún um klukkan 18:00 í gærkvöldi, miðvikudag 25. september. 

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Kára eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 4441000.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×