Innlent

Sögð hafa veifað egg­vopni sem reyndist trjá­grein

Atli Ísleifsson skrifar
Konan var í annarlegu ástandi.
Konan var í annarlegu ástandi. Vísir/Vilhelm
Skömmu fyrir klukkan 20 í gærkvöldi hafði lögreglan afskipti af konu í annarlegu ástandi við Austurvöll.

Konan var sögð hafa verið að ógna fólki með eggvopni. Þegar lögregla kom á staðinn hafði konan trjágrein í hendi sem hún sagðist hafa veifað að fólki sem var að stríða henni og ekkert var bólaði á hinu meinta eggvopni.

Með ræktun á heimili sínu í Breiðholti

Síðar um kvöldið hafði lögregla afskipti af manni á heimili hans í fjölbýlishúsi í Breiðholti. Þar voru lögreglumenn á vettvangi að sinna öðru máli er þeir fundu mikla fíkniefnalykt koma frá íbúð í blokkinni.

Þegar lögreglumenn athuguðu málið og spurðu húsráðanda íbúðarinnar fíkniefni þá sýndi hann þeim ræktun í íbúð sinni þar sem hann hafði tólf plöntur í tjaldi.

Plönturnar ásamt ræktunarbúnaði voru fjarlægðar af lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×