Kósóvó ósigrað í undankeppninni og komið á topp síns riðils Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 7. september 2019 15:01 Mërgim Vojvoda skoraði sigurmarkið gegn Tékkum. vísir/getty Kósóvó heldur áfram að koma á óvart í undankeppni EM 2020 en í dag vann liðið 2-1 sigur á Tékklandi á heimavelli. Með sigrinum komst Kósóvó á topp A-riðils undankeppninnar. Kósóvóar hafa unnið tvo af fyrstu fjórum leikjum sínum og gert tvö jafntefli. Tékkland komst yfir með marki Patriks Schick á 16. mínútu. Fjórum mínútum síðar jafnaði Vedat Muriqi metin. Mërgim Vojvoda skoraði svo sigurmark Kósóvóa á 67. mínútu. England getur endurheimt toppsætið í riðlinum með sigri á Búlgaríu í leik sem hefst klukkan 16:00. Tékkland er í 3. sæti riðilsins með sex stig eftir fjóra leiki. EM 2020 í fótbolta