Allt troðið á Anfield en Pep skilur ekkert í tómu sætunum hjá Man. City Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. apríl 2019 10:30 Fjölskylda af stuðningsmönnum Manchester City mætt á leik á Ethiad. Það hefur verið nóg af tómum sætum í síðustu leikjum liðsins. Getty/ Stu Forster
Titilbarátta Manchester City og Liverpool stefnir í að verða eins sú rosalegasta á síðustu árum en liðin hafa skipst á að taka toppsætið af hvoru öðru á undanförnum vikum. Áhugi stuðningsmanna félaganna á liðum sínum er aftur á móti ekki alveg sá sami. Það er eitt sem breskir blaðamenn hafa rekið augun í. Á meðan það er gríðarlegur áhugi á öllum leikjum Liverpool á Anfield þá gengur ekki nærri því eins vel hjá Manchester City að fá áhorfendur á leik liðsins. Stuðningsmenn Liverpool lifa í voninni um að enda 29 ára bið eftir Englandsmeistaratitlinum en stuðningsmenn City eru kannski orðnir smá ofdekraðir eftir alla velgengni liðsins á síðustu árum. Umræðan hefur skapast í breskum fjölmiðlum eftir að Manchester City náði ekki að selja alla miðana sem félagið fékk á undanúrslit ensku bikarkeppninnar um helgina. City vann þá 1-0 sigur á Brighton og tryggði sér sæti í úrslitaleiknum. Manchester City fékk 35 þúsund miða á leikinn fyrir sína stuðningsmenn en varð að senda tvö þúsund til baka. Grein í Manchester Evening News segir að City hafi aðeins náð að selja 30 þúsund miða til sinna stuðningsmanna. Á leiknum mátti síðan sjá áberandi mikið af tómum sætum. Simon Stone hjá BBC Sport spurði Pep Guardiola út í það af hverju City gengi svona illa að selja miða miðað við að liðið er í titilbaráttu á fjórum vígstöðum og er að margra mati skemmtilegasta liðið í ensku deildinni. Undanúrslitaleikur á Wembley ætti ekki að vera daglegt brauð hjá félögum. „Ég veit ekki hver ástæðan er,“ svaraði Pep Guardiola og bætti við: „Kannski getur klúbburinn svarað þessu betur en ég. Þegar þeir geta mætt þá mæta þeir. Ef þeir eru uppteknir þá koma þeir ekki. Ég veit ekki af hverju,“ bætti Guardiola við. Stemmningin á Anfield er engu lík en á sama tíma er fullt af tómum sætum á Etihad leikvanginum eins og sást í leiknum á móti Cardiff í síðustu viku. Það er því ekkert skrítið að sumir klóri sér í hausnum yfir þessu. Það er vissulega kostnaðarsamt að styðja lið sem er í úrslitaleikjum á öllum vígstöðvum og ferð frá Manchester til London kostar örugglega sitt. Það er hætt við því að margir City-menn hafi verið að „spara“ fyrir úrslitaleikinn enda ekki miklar líkur á því að Manchester City tapaði þessum undanúrslitaleik. Hver sé skýringin er þá munu enskir blaðamenn örugglega fylgjast mjög vel með mætingu stuðningsmanna Manchester City á leikina sem eftir eru á tímabilinu. Það er nefnilega eitthvað óeðlilegt við það að lið sem á möguleika á hinni sögulegu fernu trekki ekki meira að en það virðist gera samkvæmt þessum fréttum.
Enski boltinn Mest lesið Selfoss fór með sigur af hólmi á Laugardalsvelli Íslenski boltinn „Komnir með miklu fleiri stig en ég átti von á“ Handbolti „Varnarleikurinn var skelfilegur” Handbolti Uppgjörið: Fram - Haukar 37-34 | Framarar gengu á lagið í síðari hálfleik Handbolti Virtist ætla að vaða í samherja sinn Fótbolti Dortmund kom til baka á meðan AC Milan og Chelsea unnu örugga sigra Fótbolti FH á toppinn eftir sigur í Garðabæ Handbolti Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Körfubolti Efast um dugnað og hugarfar Rashford Enski boltinn Ísak Bergmann kom Düsseldorf til bjargar Fótbolti Fleiri fréttir Efast um dugnað og hugarfar Rashford Tímabilið búið hjá Rodri Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Sjá meira