Salah tryggði Liverpool seiglusigur Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 12. janúar 2019 16:45 Mo Salah á fullri ferð. vísir/getty Liverpool komst aftur á sigurbraut í ensku úrvalsdeildinni með seiglusigri á Brighton á suðurströndinni. Liverpool tapaði sínum fyrsta leik í deildinni í vetur í síðustu umferð þegar liðið beið lægri hlut gegn Manchester City. Liðið féll svo út úr ensku bikarkeppninni og þurfti því að svara fyrir sig í dag. Það var ekki að sjá á upphafsmínútunum að leikmenn Liverpool væru komnir aftur í gírinn, leikurinn var afskaplega rólegur í fyrri hálfleik. Liverpool var með algjöra yfirburði í því að halda boltanum en vörn Brighton hélt vel og þeir komust ekki lönd né strönd í sókninni. Fyrsta skotið á markið kom ekki fyrr en í upphafi seinni hálfleiks þegar Mohamed Salah átti fast skot í átt að marki en David Button var vandanum vaxinn í marki Brighton. Stuttu seinna kom hins vegar fyrsta markið. Pascal Gross braut á Salah innan vítateigs og víti dæmt. Egyptinn fór sjálfur á punktinn og skoraði örugglega. Hann jafnaði þar með markafjölda Pierre-Emerick Aubameyang og Harry Kane í deildinni og eru þeir þrír markahæstir með 14 mörk. Þrátt fyrir að mark væri komið í leikinn breyttist hann ekki mikið. Brighton fékk þó færi til þess að skora jöfnunarmark en ekkert dauðafæri. Salah hefði getað gert út um leikinn undir lokin en hann hitti ekki á markið eftir sendingu frá Milner, frír við markteiginn. Lokastaðan 1-0 og Liverpool komið með sjö stiga forskot á toppi deildarinnar, Manchester City á þó leik til góða á mánudagskvöld. Enski boltinn