Innlent

Handtekinn fyrir að hringja ítrekað í neyðarlínuna að tilefnislausu

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Viðkomandi truflaði störf neyðarvarða.
Viðkomandi truflaði störf neyðarvarða. Vísir/vilhelm
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók á fjórða tímanum í nótt einstakling sem hringt hafði ítrekað í 112 að tilefnislausu. Með hringingunum hafði viðkomandi truflað störf neyðarvarða. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Þá voru nokkrir ökumenn stöðvaðir í gærkvöldi og í nótt vegan gruns um akstur undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna. Nokkrir ökumannanna voru einnig sviptir ökuréttindum.

Einnig hafði lögregla afskipti af tveimur einstaklingum sem grunaðir eru um vörslu fíkniefna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×