Innlent

Vettvangsferð verður farin á Búlluna í máli gegn lögreglumanni

Aðalheiður Ámundadóttir skrifar
Skýrsla réttarmeinafræðings um orsök áverkanna styður lýsingu í ákæru og framburður sjónarvotta við Búlluna einnig.
Skýrsla réttarmeinafræðings um orsök áverkanna styður lýsingu í ákæru og framburður sjónarvotta við Búlluna einnig. Fréttablaðið/GVA
Aðalmeðferð hófst í Héraðsdómi Reykjaness í gær í máli lögreglumanns sem ákærður hefur verið vegna handtöku við Hamborgarabúlluna í Kópavogi vorið 2017, en hinn handtekni tvífótbrotnaði við handtökuna.

Ekki bar öllum sem gáfu skýrslu fyrir dómi saman um hvort lögreglumaðurinn skellti hurð lögreglubílsins af afli á fót eða fætur hins handtekna eða hvort hann eins og byggt er á í ákæru beitti eingöngu lögreglukylfu á fætur mannsins eins og hann hélt sjálfur fram fyrir dómi. Með tilliti til breytilegs framburðar vitna og ólíks sjónarhorns sem sjónar­vottar höfðu af atburðum ákvað dómari að farin skuli vettvangsferð að Hamborgarabúllunni í Kópavogi og atburðirnir sviðsettir í því skyni að varpa betra ljósi á framburð vitna af því sem gerðist.

Skýrsla réttarmeinafræðings um orsök áverkanna styður lýsingu í ákæru og framburður sjónarvotta við Búlluna einnig. Einn þeirra sagði engan vafa leika á því að fætur mannsins hefðu verið milli stafs og hurðar þegar hurðinni var skellt á fætur mannsins en kylfu hefði einnig verið beitt. „Þetta var ítrekað, bæði kylfan og hurðin. Ég var ekkert að telja [höggin] en þetta var ítrekað.“

Lögreglumaðurinn sagði sjálfur í sinni skýrslu að notkun piparúða hafi ekki verið möguleg inni í bílnum og hann því gripið til kylfunnar eins og verklag geri ráð fyrir til að koma fótum mannsins inn í bílinn. Hann sagðist telja að fótbrotin hefðu komið til af þriðja kylfuhögginu og spörkum mannsins sjálfs í innréttingu bílhurðarinnar. Hann sagðist aldrei hafa séð fætur mannsins fyrir utan bílinn þegar hann reyndi að loka dyrunum.

Yfirmaður hins ákærða hjá lögreglunni kom einnig fyrir dóm og kvað ákærða hafa brugðist hárrétt við með notkun kylfunnar og ákvörðun um að grípa til hennar hefði verið í samræmi við verklagsreglur um valdbeitingu hjá lögreglunni.

Vettvangsferð dómara að Hamborgarabúllunni verður farin í næstu viku og verður aðalmeðferð framhaldið að henni lokinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×