Leik lokið: Brasilía - Ísland 32-29 | Slæmt tap í síðasta leik Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 23. janúar 2019 16:15 Ýmir Örn Gíslason gengur niðurlútur af velli. vísir/epa Ísland lauk keppni á HM í handbolta í dag með þriggja marka fyrir Brasilíu. Frammistaða strákanna okkar olli vonbrigðum en þeir voru talsvert frá sínu besta í dag. Brasilíumenn fengu draumabyrjun í leiknum. Skoruðu fyrstu fimm mörk leiksins og héldu hreinu fyrstu átta mínúturnar. Á þessum kafla var leikur Íslands einfaldlega í molum og þurfti Guðmundur Guðmundsson að taka leikhlé. Þrír byrjunarliðsmenn voru teknir af velli og það hleypti smá lífi í íslenska liðið. Meðal þeirra var Björgvin Páll Gústavsson sem kom svo aftur inn eftir 20 mínútna leik, þar sem að Ágúst Elí Björgvinsson náði sér heldur ekki á strik. Björgvin Páll varði nokkur mikilvæg skot eftir að hann kom inn á og það kom íslenska liðinu loksins almennilega í gang. Elvar Örn Jónsson nýtti sín færi ágætlega og Ómar Ingi Magnússon var klókur að fiska víti. Ísland kom sér því aftur inn í leikinn og var jafnt í lok fyrri hálfleiks, 15-15. Ísland byrjaði svo með boltann í síðari hálfleik og fékk því kjörið tækifæri til að komast aftur yfir. En allt kom fyrir ekki. Tveir tapaðir boltar á fyrstu 50 sekúndunum gáfu tóninn. Brasilíumenn náðu aftur undirtökunum í leiknum. Inn á milli náðu okkar menn að komast aftur á rétt spor og í tvígang náði Ísland að jafna metin í síðari hálfleik. En eins og áður tókst ekki að fylgja því eftir og gengu Brasilíumenn á lagið og voru með algera yfirburði á lokakafla leiksins. Vörn Íslands var sérstaklega slæm á köflum og bauð Brasilíumönnum upp á mörg galopin færi. Þá var markvarslan langt undir væntingum á löngum köflum, sem hjálpaði ekki til. Hratt uppspil gekk vel og hélt Íslandi lengi vel inni í leiknum en að sama skapi var uppstilltur sóknarleikur slæmur og skilaði afar litlu. Frekari umfjöllun er væntanleg á Vísi innan skamms. HM 2019 í Þýskalandi og Danmörku
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti