Caballero þurfti ekki að verja eitt skot er Chelsea kláraði Tottenham

Anton Ingi Leifsson skrifar
Hazard og Pedro fagna í kvöld.
Hazard og Pedro fagna í kvöld. vísir/getty
Kepa Arrizabalga var settur á bekkinn er Chelsea vann 2-0 sigur á Tottenham í Lundúnarslag í kvöld en Kepa neitaði að koma af velli í úrslitaleiknum gegn Manchester City um helgina í deildarbikarnum.

Mikið fjaðrafok var eftir atvikið og ákvað Maurizio Sarri, stjóri Chelsea, að henda Kepa á bekkinn. Willy Caballero var því í markinu í kvöld og hann hafði lítið að gera. Í raun ekkert.







Staðan var markalaus í hálfleik en á 57. mínútu var það Pedro sem kom Chelsea yfir eftir laglegan einleik. Heimamenn komnir með forystu.

Sex mínútum fyrir leikslok tvöfaldaði Chelsea svo forystuna en það var Kieran Trippier sem skoraði í eigið mark. Markið var afar skrautlegt en Trippier ætlaði að gefa boltann til baka á markvörðinn Lloris sem var kominn út úr markinu.

Lokatölur 2-0 og Tottenham átti ekki skot á markið í kvöld en það gerist ekki oft. Tottenham er í þriðja sætinu með 60 stig en Chelsea er í sjötta sætinu með 53 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira