Marsspá Siggu Kling - Nautið: Verður nóg af peningum í kringum þig elskan mín Sigga Kling skrifar 1. mars 2019 09:00
Elsku Nautið mitt, það er að fara að vora og þú ert að vakna, töluverð leiðindi, veikindi og tilfinningavitleysur hafa verið að sveima í kringum þig, svo lífið þitt hefur verið eins og kokteill sem verður ekki í boði á vínlistanum þínum. Þú ert að skoða svo margt til þess að sauma þig saman og gera sterkari, klára krossgátuna, þú ert ekki búinn að finna síðasta orðið en þetta er svo sannarlega árið þitt því þú átt eftir að mastera sjálfan þig ef hægt er að segja svo. Þú verður ákveðnari, segir fallega nei ef þú vilt ekki taka þátt í einhverju, blómstrar og þenur þig út líkt og bláa lúpínan á Húsavík. Þú átt eftir að breyta hlutum sem tengjast vinnu og snúa hlutunum þér í hag, þú munt laga vandamálin svo fljótt og vel og í þeim kafla á eftir að koma þér á óvart hversu leikinn þú ert í mannlegum samskiptum. Settu örlítið meira power hjartað mitt í félagslífið, þó þú nennir því ekki taktu þá í hnakkadrambið á þér og hentu þér út í hringiðu lífsins, þá verður þú á réttum tíma og réttum stað, hvort sem það tengist ástinni eða vinnutengdum frama. Sjötíu prósent af öllum árangri fæst með því einu að mæta á staðinn, hvort sem það er til læknis, á tónleikana eða til Nönnu vinkonu, svo láttu sjá þig og í því er krafturinn sem þú ert að leita að fólginn og þú munt geisla af krafti og orku og verða eins og eldfjall. Í þessum farvegi finnurðu orðið þitt sem vantar í krossgátuna, eins og þú fáir að vita ólíklegustu hluti, gamlir vinir gera vart við sig og nýjar tengingar myndast. Það verður nóg af peningum í kringum þig elskan mín og nóg þýðir að það dugar, treystu svo á ástina því þá mun hún treysta á þig.Knús og kossar, þín Sigga KlingFræg Naut: Aron Einar Gunnarsson fyrirliði íslenska knattspyrnulandsliðsins, Hannes Þór Halldórsson markvörður, Ari Freyr Skúlason landsliðsmaður, Svali Kaldalóns fjölmiðlamógúll, Guðrún Veiga Guðmundsdóttir, rithöfundur og latikokkur, Ellý Ármanns fjölmiðlakona, Friðrik Þór Friðriksson leikstjóri, Valtýr Björn Valtýsson íþróttafréttamaður, Ólafur Ragnar Grímsson, Álfheiður Ingadóttir þingkona, Halldór Laxness, rithöfundur og skáld, Rúnar Freyr Gíslason leikari, Garðar Thor Cortes söngvari, Helga Möller söngkona, Katrín Tanja Davíðsdóttir crossfit-meistari, Nanna Bryndís Hilmarsdóttir söngkona, Pétur Jóhann Sigfússon, Addi Exos dj-snillingur, Davíð Rúnar Bjarnason, boxari, Þórunn Pálsdóttir fasteignasali, Silla Páls, ljósmyndari og listamaður.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Íslensk börn skorti meiri aga Lífið Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Lífið Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Lífið Í hnapphelduna með krókódílamanninum Lífið Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Lífið Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Lífið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Lífið Fleiri fréttir Í hnapphelduna með krókódílamanninum Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Íslensk börn skorti meiri aga Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Prince-dansarinn Cat er látinn Heillandi haustkvöld í Höfuðstöðinni Svona undirbýr Bogi sig fyrir útsendingu Ekkert mál að hlaupa alveg staurblindur „Æsandi að hugsa til þess að annar maður horfi á“ Breyttu Kolaportinu í risa skemmtistað „Æi góði hoppaðu upp í rassgatið á þér!“ Norðlenskur útsýnisdraumur „Hvar eru allir herramennirnir?“ Stefnumótunarferð Fossa með mökum í Prag Hittast á hlutlausum stað Sjá meira