Jóhann Berg spilaði allan leikinn í tapi

Anton Ingi Leifsson skrifar
Jóhann Berg Guðmundsson í eldlínunni í kvöld.
Jóhann Berg Guðmundsson í eldlínunni í kvöld. vísir/getty
Jóhann Berg Guðmundsson spilaði allan leikinn fyrir Burnley sem tapaði 2-0 fyrir Newcastle á útivelli í kvöld.

Burnley vann frábæran sigur á Tottenham í síðustu umferð en var skellt aftur niður á jörðina í kvöld af Rafa Benitez og lærisveinum hans.

Bæði mörk Newcastle komu í fyrri hálfleik. Fyrra markið skoraði Fabian Schar á 24. mínútu og fjórtán mínútum síðar var Sean Longstaff á skotskónum. Lokatölur 2-0.

Burnley er í fjórtánda sætinu með 30 stig og er sex stigum frá fallsæti. Newcastle er í fimmtánda sætinu með með 28 stig.







Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira