Fótbolti

Góður endir hjá íslenska liðinu í Algarve

Hjörvar Ólafsson skrifar
Dagný Brynjarsdóttir spilaði í gær.
Dagný Brynjarsdóttir spilaði í gær. vísir/getty
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu lauk leik á Algarve-mótinu í Portúgal, sem stóð yfir í tæpa viku, með sannfærandi 4-1 sigri gegn gestgjöfum mótsins. Sá sigur þýðir að Ísland hafnar í níunda sæti í mótinu.

Það voru Agla María Albertsdóttir, Selma Sól Magnúsdóttir, Margrét Lára Viðarsdóttir og Svava Rós Guðmundsdóttir sem skoruðu mörk íslenska liðsins í leiknum.

Þetta voru fyrstu landsliðsmörk Selmu Sólar og Svövu Rósar fyrir íslenska landsliðið og fyrsta mark Margrétar Láru síðan í byrjun júní árið 2016.

„Þetta var gott svar eftir slakan leik gegn Skotum. Við stýrðum þessum leik vel og áttum margar góðar sóknir. Við sýndum líka góða baráttu og góðan liðsbrag. Það er líka gott að fá aukna breidd í sóknar leikinn. Svava og Selma skora sín fyrstu landsliðsmörk og Margrét Lára skoraði langþráð mark. Það er mikilvægt fyrir okkur að það leggi margar í púkkið í sóknarleiknum og þeir leikmenn sem koma inn á í leikjum láti til sín taka. Við erum heilt yfir sátt með frammistöðu okkar á mótinu þó svo að leikurinn við Skota hafi auðvitað alls ekki verið nógu góður,” sagði Jón Þór.

„Það eru alþjóðlegir leikdagar í apríl og júní og við stefnum að því að leika tvo vináttulandsleiki í báðum gluggunum. Undankeppnin fyrir EM 2021 hefst svo um mánaðamótin ágúst og september og við förum jákvæð í næstu verkefni,“ segir hann um framhaldið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×