Landeigendur segja ríkisstjórn efna til átaka um umráð lands Kristján Már Unnarsson skrifar 14. mars 2019 20:30 Frá aðalfundi Landssamtaka landeigenda á Íslandi í Bændahöllinni í dag. Snorri Jóhannesson, bóndi á Augastöðum, í ræðustól. Þórólfur Halldórsson fundarstjóri og Óskar Magnússon, formaður samtakanna, sitja við háborðið. Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson.
Ríkisstjórnin efnir til átaka við bændur og landeigendur með lagafrumvörpum sem færa umráð yfir landi til ríkisstofnana. Þetta kom fram á málþingi samtaka landeigenda í dag undir yfirskriftinni „Hver á Ísland?“. Fjallað var málið í fréttum Stöðvar 2. Glöggt mátti heyra á landeigendum á aðalfundi þeirra í Bændahöllinni og málþingi í kjölfarið að þeir telja vegið að eignarétti sínum. „Það er mjög þungt í landeigendum, sem að mjög stórum hluta eru, eðli málsins samkvæmt, bændur á Íslandi,“ segir Óskar Magnússon, formaður Landssamtaka landeigenda á Íslandi, og segir um 400 manns í samtökunum.Óskar Magnússon, formaður Landssamtaka landeigenda á Íslandi.Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson.Snorri Jóhannesson, bóndi á Augastöðum í Borgarfirði, hvatti til þess að dreifbýlið risi upp gegn áformum um að gera allt hálendið að þjóðgarði. „Ég óttast að ef menn vilja framkvæma einhverjar nauðsynlegar framkvæmdir, svo sem vegi, leitarmannaskála eða annað á hálendinu, þá þurfi að sækja það allt til Reykjavíkur,“ segir Snorri. Einn af eigendum Látrabjargs lýsti því sem hann kallaði yfirgang Umhverfisstofnunar og umhverfisráðherra vegna áforma um friðlýsingu. „Þetta séu aðallega stjórnmálamennirnir sem vilja ráða öllu, - og þeir sem vinna hjá ríkinu,“ segir Marías Sveinsson, stærsti eigandi Hvallátra í Vestur-Barðastrandarsýslu.Marías Sveinsson, stærsti eigandi Hvallátra í Vestur-Barðarstrandarsýslu.Stöð 2/Friðrik Þór Hallldórsson.Óskar lýsir þremur átakamálum: „Í fyrsta lagi er komið fram frumvarp um þjóðgarða, sem vegur mjög að eignaréttindum og umráðum landeigenda, og lítið gert með það að hafa samráð við þá. Það er komin viðamikil skýrsla um eignarhald á bújörðum þar sem líka er gert ráð fyrir allskonar íhlutun ríkisvaldsins, sem ekki stenst eignarréttarákvæði Stjórnarskrárinnar. Og nú í þriðja lagi, sem reyndar hefur farið mjög leynt, er breyting sem framundan er á náttúruverndarlögum, þar sem nánast umráð lands eru tekin af landeigendum. Þeim er ekki heimilt að stöðva för heilu hópferðabílanna eða stórferða um lönd sín, nema það séu einhverjar skipulagðar og endurteknar ferðir,“ segir Óskar.Snorri Jóhannesson, bóndi á Augastöðum í Hálsasveit.Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson.Snorri á Augastöðum bendir á að bændur séu búnir að sjá um sín lönd í yfir þúsund ár. „Og þau eru þarna ennþá, ekki verri en þau eru. Og ég held að landsbyggðarfólk sé alveg fullfært um að sjá um þetta,“ segir Snorri. „Ég óttast að það séu átök framundan, já, - milli landeigenda, bænda, - fólks um allt land sem er að reyna að nýta eignir sínar, - ef þetta á allt saman að ná fram að ganga,“ segir Óskar. „Þetta er prinsippmál. Við viljum bara ráða þessu,“ segir Snorri. Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Alþingi Landbúnaður Ríkisstjórn Umhverfismál Tengdar fréttir Vill koma á fót Þjóðgarðastofnun Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, kynnti í dag í ríkisstjórn áform um að koma á fót Þjóðgarðastofnun. 18. ágúst 2017 13:37 Umhverfisráðherra segir hjól friðlýsingar farin að snúast Umhverfis- og auðlindaráðherra vonast til að hægt verði að ljúka friðlýsingum á fimm svæðum í verndarflokki rammaáætlunar um mitt næsta ár. Efnahagslegur ávinningur tólf friðlýstra svæða á síðasta ári var 33,5 milljarðar. 10. nóvember 2018 09:00 Þjóðgarðar og friðlýsingar flytja valdið til Reykjavíkur Tortryggni gætir hjá íbúum á landsbyggðinni í garð hugmynda um fleiri þjóðgarða og friðlýsingar. 14. júlí 2016 21:45 Nefnd umhverfisráðherra kannar forsendur hálendisþjóðgarðs Sett verður á fót nefnd, samkvæmt ákvörðun Sigrúnar Magnúsdóttur, umhverfis- og auðlindaráðherra, sem falið verður að kanna forsendur fyrir stofnun þjóðgarðs innan svokallaðrar miðhálendislínu. 15. júní 2016 07:00 Landsfundur skilyrti stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu Landsfundur Sjálfstæðisflokksins hefur sett það sem skilyrði fyrir stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu að sátt náist við aðliggjandi sveitarfélög. 18. mars 2018 20:45 Telja Þjóðgarðastofnun skerða rétt sinn Á fjórða tug athugasemda bárust við drög að frumvarpi um stofnun Þjóðgarðastofnunar. Í drögunum eru þjóðgarðar og stjórnsýsla þeirra sameinuð. 7. september 2018 08:00 Óttast að þjóðgarður færi meira vald til Reykjavíkur Áform ríkisstjórnarinnar um hálendisþjóðgarð mæta andstöðu á landsbyggðinni, en þar óttast menn aukna miðstýringu og valdatilfærslu til Reykjavíkur. 15. mars 2018 21:45 Mest lesið Pútín í Kúrsk: Farið verði með úkraínska hermenn eins og hryðjuverkamenn Erlent Gamall mafíuforingi skotinn til bana í Grenoble Erlent Allir vígamenn drepnir og gíslatökunni lokið Erlent Handtekinn á vafasömum forsendum og hótað brottflutningi Erlent Þrír í gæsluvarðhald vegna manndráps í Gufunesi Innlent Lögregla lýsir eftir manni Innlent Hafna ásökunum á hendur forystu flokksins Innlent Ótrúlega oft ekið á búfé á Suðurlandi Innlent Um fimm þúsund börn með offitu á Íslandi Innlent Reykjavíkurborg dregur úr áformunum Innlent Fleiri fréttir Þrír í gæsluvarðhald vegna manndráps í Gufunesi Ótrúlega oft ekið á búfé á Suðurlandi Um fimm þúsund börn með offitu á Íslandi Reykjavíkurborg dregur úr áformunum Hafna ásökunum á hendur forystu flokksins Varðhald í manndrápsmáli, offita barna og íslenskir kafbátar Berklasmit á Fáskrúðsfirði Berghildur Erla hlaut blaðamannaverðlaun fyrir Vistheimilin Guðni verður prófessor í nafni Jóns Sigurðssonar Leikarar og dansarar á leið í verkfall Bein útsending: Blaðamannaverðlaunin afhent Tekið á móti nýju hafrannsóknaskipi Taldir hafa nýtt sér óvissu um starfsemi Zuism til þess að svíkja út fé Ögurstund upp runnin hjá VR Skjálftahrina við Reykjanestá Lýsir ofríki og andlegu ofbeldi Gunnars Smára Samþykkt að fella 700 til 900 tré í næsta áfanga Ráðherra mátti sín lítils gegn ríkinu Fangelsisdómar Zúistabræðra staðfestir Lögregla lýsir eftir manni Bæjarfulltrúum í Suðurnesjabæ fækkað um tvo Bindur vonir við að aukið fjármagn fáist í viðhald fyrir vestan Ekki meira en 350 grömm af rauðu kjöti á viku og sem minnst af sykri Lögregla segir rannsókn manndrápsins enn á frumstigi Rannsókn lögreglu enn á frumstigi Mætt í sína fyrstu opinberu heimsókn innanlands Mæla gegn því að ungbörn séu hnykkt Bein útsending: Landlæknir endurskoðar ráð sín um mataræði Þrír í vikulangt gæsluvarðhald Almyrkvi á tungli snemma á föstudagsmorgun Sjá meira
Vill koma á fót Þjóðgarðastofnun Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, kynnti í dag í ríkisstjórn áform um að koma á fót Þjóðgarðastofnun. 18. ágúst 2017 13:37
Umhverfisráðherra segir hjól friðlýsingar farin að snúast Umhverfis- og auðlindaráðherra vonast til að hægt verði að ljúka friðlýsingum á fimm svæðum í verndarflokki rammaáætlunar um mitt næsta ár. Efnahagslegur ávinningur tólf friðlýstra svæða á síðasta ári var 33,5 milljarðar. 10. nóvember 2018 09:00
Þjóðgarðar og friðlýsingar flytja valdið til Reykjavíkur Tortryggni gætir hjá íbúum á landsbyggðinni í garð hugmynda um fleiri þjóðgarða og friðlýsingar. 14. júlí 2016 21:45
Nefnd umhverfisráðherra kannar forsendur hálendisþjóðgarðs Sett verður á fót nefnd, samkvæmt ákvörðun Sigrúnar Magnúsdóttur, umhverfis- og auðlindaráðherra, sem falið verður að kanna forsendur fyrir stofnun þjóðgarðs innan svokallaðrar miðhálendislínu. 15. júní 2016 07:00
Landsfundur skilyrti stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu Landsfundur Sjálfstæðisflokksins hefur sett það sem skilyrði fyrir stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu að sátt náist við aðliggjandi sveitarfélög. 18. mars 2018 20:45
Telja Þjóðgarðastofnun skerða rétt sinn Á fjórða tug athugasemda bárust við drög að frumvarpi um stofnun Þjóðgarðastofnunar. Í drögunum eru þjóðgarðar og stjórnsýsla þeirra sameinuð. 7. september 2018 08:00
Óttast að þjóðgarður færi meira vald til Reykjavíkur Áform ríkisstjórnarinnar um hálendisþjóðgarð mæta andstöðu á landsbyggðinni, en þar óttast menn aukna miðstýringu og valdatilfærslu til Reykjavíkur. 15. mars 2018 21:45