„Mér finnst Efling ganga æði langt og í raun og veru jaðrar þetta við stríðsyfirlýsingu gagnvart þeim sem löglega eru að aka þegar Efling er í verkfalli. Það er látið að því liggja að allir séu að stunda lögbrot og það er bara sorglegt þegar menn fara fram með þessum hætti. Það er bara óskiljanlegt og fordæmalaust,“ segir Þórir um einblöðunga sem Efling lét gera þar sem ferðamönnum er ráðlagt að nota aðra samgöngumáta en hópferðabíla.
„Ég á varla orð til að lýsa þessu. Þetta er komið út í mjög sérstaka baráttu núna. Þetta er hætt að snúast um að ræða kaup og kjör og að ná árangri og farið að snúast um að reyna að skaða sem mest og það sem er verra, gera lítið úr viðsemjendum.“
Líður þér eins og verið sé að gera lítið úr þér?

Gray Line, ferðaskrifstofa og hópferðafyrirtæki, hefur lokað fyrir bókanir í dagsferðir á fimmtudag og föstudag en Þórir segist ætla, líkt og síðasta föstudag, ætla að fara nokkrar ferðir á Keflavíkurflugvöll. Verkfallið nær til 80 starfsmanna fyrirtækisins og þá verður ferðaskrifstofan, sem rekin er á sömu kennitölu, einnig lokuð á fimmtudag og föstudag.
Aðspurður hvort það séu margir sem séu utan félaga hjá fyrirtækinu svarar Þórir:
„Við erum með nokkra starfsmenn sem eru utan Eflingar og VR sem ganga bara í sín störf en við erum ekki að kalla inn aukastarfsmenn úr öðru félagi til að taka aukavaktir á þessum dögum.“
Þið gerið það ekki?
„Nei, við ákváðum strax að taka mjúku leiðina á þetta og við fáum það svona snyrtilega til baka aftur,“ segir Þórir.

Túlkunin grundvallist á lögum og siðferði
Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar, er ánægður með að gulu miðarnir séu að vekja athygli. Það hafi verið tilgangurinn með auglýsingunni.„Við viljum bara axla ábyrgð á því að ferðamenn séu rétt upplýstir um það sem er í vændum núna á fimmtudag og föstudag,“ segir Viðar. Forsvarsmenn Eflingar ætlist til þess að hópbifreiðaakstur falli niður með þeirri undantekningu að forstjórar og æðstu yfirmenn geti gengið í störfin.
„Við gerum þá kröfu að okkar verkfallsboðun, sem er lögleg og hefur verið rækilega tilkynnt til allra hlutaðeigandi aðila samkvæmt lögum um stéttarfélög og vinnudeilur, sé virt og það eru okkar skilaboð.“
Viðar segir að túlkun Eflingar á vinnulöggjöfinni hafi alltaf legið fyrir. Hún sé grundvölluð á lögum, hefðum, venjum og siðferðissjónarmiðum.
„Við förum með samningsumboð fyrir hópbifreiðaakstur á þessu félagssvæði og þar af leiðir að þegar við förum í verkfallsaðgerðir þá eru þær til þess að verja kjör þeirra sem þar starfa og mér finnst í fyrsta lagi siðlaust og í öðru lagi líka á skjön við vinnulöggjöfina að atvinnurekendur séu að lýsa því yfir að þeir ætli að láta einstaklinga sem eru ranglega skráðir til félags vinna vinnu eins og ekkert hafi í skorist.
Mér finnst það líka ábyrgðarlaust í ljósi þess að við erum búin að lýsa því yfir að við munum viðhafa verkfallsvörslu að þessir aðilar séu að láta þau boð út ganga til þá til að mynda væntanlega ferðamanna að þeir geti átt von á óskertri þjónustu á þessum verkfallsdögum.“
Fréttin hefur verið uppfærð með viðbrögðum frá Viðari Þorsteinssyni klukkan 12:03.