Heimavarnaráðherra Trump er hætt Samúel Karl Ólason skrifar 7. apríl 2019 22:37 Nielsen og Trump ferðuðust nýverið til landamæra Bandaríkjanna og Mexíkó. AP/Jacquelyn Martin
Kirstjen Nielsen, heimavarnarráðherra Bandaríkjanna, er hætt í starfi sínu. Hún fór á fund Donald Trump, forseta nú í kvöld og afhenti honum afsagnarbréf sitt, samkvæmt fregnum ytra. Samkvæmt AP fréttaveitunni vissi Nielsen ekki hvort hún yrði rekin eða myndi segja af sér þegar hún fór á fund forsetans í kvöld. Hún endaði á því að segja af sér. Nielsen var meðal annars boðuð á fund forsetans vegna þess að hann var ósáttur við að geta ekki alfarið lokað landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó. Nielsen hefur sætt mikilli gagnrýni vegna starfa hennar og þá sérstaklega þegar í ljós kom að verið væri að skilja börn flótta- og farandfólks frá foreldrum sínum á landamærunum og geyma þau í búrum í einhverjum tilvikum. Þá mun Trump hafa misst trú á henni að undanförnu vegna aukins fjölda fjölskylda sem ferðast hafa að og yfir landamæri Bandaríkjanna og Mexíkó. Sömuleiðis hefur hún verið ósátt við hve illa hefur gengið að fá hjálp annarra stofnanna við landamærin.Its been an honor of a lifetime to serve with the brave men and women of @DHSgov. I could not be prouder of and more humbled by their service, dedication, and commitment to keep our country safe from all threats and hazards. pic.twitter.com/lIQ5iqGDmF — Sec. Kirstjen Nielsen (@SecNielsen) April 7, 2019 Kevin McAleenan, yfirmaður Tolla- og landamæraeftirlits Bandaríkjanna, mun taka við embætti Nielsen til bráðabirgða, samkvæmt tísti frá Trump. Heimavarnarráðuneyti Bandaríkjanna var stofnað í kjölfar árásanna á Tvíburaturnana árið 2001 og var stofnuninni ætlað að sporna gegn hryðjuverkum. Gífurleg velta hefur verið á ríkisstjórn Donald Trump frá því hann tók við embætti fyrir rúmum tveimur áru. Innan ríkisstjórnarinnar eru nú starfandi heimavarnarráðherra, starfandi varnarmálaráðherra, starfandi innanríkisráðherra og starfandi starfsmannastjóri Hvíta hússins.Nielsen was not planning to resign when she walked into her meeting with Trump today, but she was prepared for the possibility. Here is her resignation letter, per a source close to Nielsen: pic.twitter.com/ElyTiwbYuR — Jeremy Diamond (@JDiamond1) April 7, 2019 Nielsen var skipuð í embætti í desember 2017 og samkvæmt Politico sló nánast samstundis í brýnu á milli hennar og Trump. Búist var við því að hann myndi reka hana eftir þingkosningarnar í fyrra en þau hafa verið ósammála um málefni innflytjenda og landamæraeftirlit frá upphafi.Sjá einnig: Heimavarnarráðherrann hætti næstum því eftir skammir Trump Trump hefur ítrekað kvartað yfir því að hún væri ekki nógu hörð í horn að taka og hefur hún sagt vinum sínum og bandamönnum að forsetinn hafi reglulega þrýst á hana að grípa til aðgerða sem færu gegn lögum Bandaríkjanna. Á undanförnum mánuðum hefur fjöldi fólks sem handtekið er á landamærunum aukist verulega. Chuck Schumer, leiðtogi Demókrata í öldungadeildinni, segir það að einn róttækasti aðili ríkisstjórnar Trump sé ekki nægilega róttækur fyrir forsetann sé til marks um að hann hafi misst tenginguna við þjóðina.When even the most radical voices in the administration aren’t radical enough for President Trump, you know he’s completely lost touch with the American people. https://t.co/4hyz8VGwQv — Chuck Schumer (@SenSchumer) April 7, 2019
Aðskilnaður barna og foreldra í Bandaríkjunum Bandaríkin Donald Trump Tengdar fréttir Ráðherrann vissi ekki að flestir væru hvítir í Noregi Trump forseti sagðist frekar vilja innflytjendur frá Noregi en löndum sem hann telur vera skítaholur á alræmdum fundi í Hvíta húsinu í síðustu viku. 17. janúar 2018 09:48 Hrakin út af mexíkóskum veitingastað eftir að hafa komið aðskilnaðarstefnunni í framkvæmd Sem heimavarnarmálaráðherra framfylgdi Nielsen aðskilnaðarstefnu Bandaríkjastjórnar í innflytjendamálum, þ.e. að aðskilja börn ólöglegra innflytjenda frá foreldrum sínum við landamærin milli Bandaríkjanna og Mexíkó. 20. júní 2018 15:24 Trump-stjórnin vill geta lokað börn farandsfólks inni ótímabundið Reglubreyting sem ríkisstjórn Trump leggur til felur í sér að innflytjendayfirvöld geti haldið börnum með foreldrum sínum í innflytjendafangelsum eins lengi og þau telja þörf á. 6. september 2018 17:41 Fóru til að hitta börn sín en hafa verið í haldi í mánuð Fyrr í þessum mánuði ferðuðust foreldrar barna frá Mið-Ameríku til Bandaríkjanna. Þar ætluðu þau sér að hitta börn sín, sem tekin voru af þeim við landamæri Bandaríkjanna í fyrra, og báðu um að fá að halda hælisumsóknum sínum áfram. 29. mars 2019 14:46 Trump ætlar að „skrifa undir eitthvað“ varðandi aðskilnað barna frá foreldrum sínum Heimavarnaráðherra Bandaríkjanna, Kirstjen Nielsen, hefur unnið drög að tilskipun um að börn verði ekki aðskilin frá foreldrum sínum. 20. júní 2018 16:36 Deilur innan Repúblikanaflokksins um neyðarástand Trump Líklegt er að öldungadeild Bandaríkjaþings muni fordæma yfirlýsingu Donald Trump, forseta bandaríkjanna, þar sem hann lýsti yfir neyðarástandi á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó. 8. mars 2019 11:00 Mest lesið „Steinhissa“ þegar honum var birt ákæra Innlent Tollaákvarðanir Trump tóku gildi á miðnætti og Kína svarar fyrir sig Erlent Ísland gæti orðið leiðandi í notkun hugvíkkandi efna Innlent Bandaríkjamenn setja vopnasendingar á bið Erlent Icelandair hættir flugi til Ísafjarðar Innlent Þungt haldinn eftir að hafa farið í sjóinn Innlent Telur einnar nætur virði að reyna að fá Spasskí Innlent Kennari mun ekki hlýða snjallsímabanni í skólum Innlent Kona féll fram af svölum fjölbýlishúss í Breiðholti Innlent Slegin óhug vegna eyðileggingarmáttar náttúruaflanna Innlent Fleiri fréttir Arababandalagið fundar um framtíð Gasa í dag Tollaákvarðanir Trump tóku gildi á miðnætti og Kína svarar fyrir sig Bandaríkjamenn setja vopnasendingar á bið Páfinn glímir við mikil öndunarvandræði en þó með meðvitund Tveir látnir í Mannheim Einn látinn í Mannheim eftir að bíl var ekið á fólk „Maðurinn með gullarminn“ látinn Cuomo býður sig fram til borgarstjóra New York Erfitt að sjá aðila ná saman um annan fasa vopnahlésins Hegseth fyrirskipar hlé á netaðgerðum gegn Rússum Starmer segir tíma aðgerða til kominn Hundruð Bandaríkjamanna mótmæltu í nafni Úkraínu Stöðva allan vöruinnflutning inn á Gasa Skrifuðu undir 400 milljarða króna lán til vopnaframleiðslu Kastaðist í kekki milli sendiherrans og öldungadeildarþingmanns Vonast til að geta átt gott samband við Trump Fyrsti fasi vopnahlésins á enda og framtíðin óljós Létust líklega tíu dögum fyrir fundinn Áður óséð hegðun Bandaríkjamanna gagnvart vinaþjóðum Heilsu páfans hrakar skyndilega Selenskí mætti í viðtal hjá Fox: Ítrekaði þakklæti sitt til Bandaríkjanna Viðbrögð Evrópu: „Í dag varð það ljóst að hinn frjálsi heimur þarf nýjan leiðtoga“ Ríkisútvarpið leggur niður störf í miðri kosningabaráttu Selenskí þakkar fjórum sinnum fyrir sig Segir Selenskí vanþakklátan og hætta á heimsstyrjöld Trump afturkallar styrki til 5.800 þróunarverkefna Mexíkóar framselja 29 stórglæpamenn til Bandaríkjanna Mynduðu stjórn án stærsta flokksins Herinn gerir upp mistökin í aðdraganda árásarinnar 7. október „Breskir hermenn geta séð um sig sjálfir“ Sjá meira
Ráðherrann vissi ekki að flestir væru hvítir í Noregi Trump forseti sagðist frekar vilja innflytjendur frá Noregi en löndum sem hann telur vera skítaholur á alræmdum fundi í Hvíta húsinu í síðustu viku. 17. janúar 2018 09:48
Hrakin út af mexíkóskum veitingastað eftir að hafa komið aðskilnaðarstefnunni í framkvæmd Sem heimavarnarmálaráðherra framfylgdi Nielsen aðskilnaðarstefnu Bandaríkjastjórnar í innflytjendamálum, þ.e. að aðskilja börn ólöglegra innflytjenda frá foreldrum sínum við landamærin milli Bandaríkjanna og Mexíkó. 20. júní 2018 15:24
Trump-stjórnin vill geta lokað börn farandsfólks inni ótímabundið Reglubreyting sem ríkisstjórn Trump leggur til felur í sér að innflytjendayfirvöld geti haldið börnum með foreldrum sínum í innflytjendafangelsum eins lengi og þau telja þörf á. 6. september 2018 17:41
Fóru til að hitta börn sín en hafa verið í haldi í mánuð Fyrr í þessum mánuði ferðuðust foreldrar barna frá Mið-Ameríku til Bandaríkjanna. Þar ætluðu þau sér að hitta börn sín, sem tekin voru af þeim við landamæri Bandaríkjanna í fyrra, og báðu um að fá að halda hælisumsóknum sínum áfram. 29. mars 2019 14:46
Trump ætlar að „skrifa undir eitthvað“ varðandi aðskilnað barna frá foreldrum sínum Heimavarnaráðherra Bandaríkjanna, Kirstjen Nielsen, hefur unnið drög að tilskipun um að börn verði ekki aðskilin frá foreldrum sínum. 20. júní 2018 16:36
Deilur innan Repúblikanaflokksins um neyðarástand Trump Líklegt er að öldungadeild Bandaríkjaþings muni fordæma yfirlýsingu Donald Trump, forseta bandaríkjanna, þar sem hann lýsti yfir neyðarástandi á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó. 8. mars 2019 11:00