Fjárfestingarsjóðurinn PAR Capital Management hefur samið um að kaupa 625 milljónir hluta í Icelandair og kaupverðið er 5,6 milljarðar króna. Upphæðin er svipuð því fjármagni sem talið var að þyrfti til að bjarga rekstri WOW air á dögunum.
Icelandair hætti við kaup á WOW air í fyrra skiptið af tveimur þann 29. nóvember síðastliðinn. Degi síðar var samþykkt á hluthafafundi Icelandair Group að auka hlutafé félagsins.

Jákvæðar fréttir fyrir Icelandair
Fyrrverandi forstjóri Icelandair Group, Jón Karl Ólafsson, segir fréttirnar jákvæðar fyrir Icelandair og íslenska ferðaþjónustu. Lítið hafi verið um erlendar fjárfestingar í Icelandair.„Það hefur verið afskaplega lítið og í rauninni ekki og aldrei í þessum mæli. Ég man að þegar ég var þarna þá skoðuðum við stundum að fá inn erlenda aðila og það þurfti virkilega harður sölumaður að vera þar á ferð. Það virðast vera breyttar forsendur enda hefur ferðaþjónustan á Íslandi vaxið mjög hratt. Þrátt fyrir tímabundin áföll þá hafa menn greinilega trú á henni til framtíðar og það er af hinu góða.“
Jón Karl telur að kaupin geti leitt til frekari áhuga erlendra fjárfesta á Icelandair.
„Þannig að ég held að þetta hljóti að teljast mjög jákvætt. Að við séum að sjá sterkari stoðir undir fyrirtæki í ferðaþjónustu. Vonandi ekki bara í flugi heldur á fleiri stöðum inní framtíðina.“