Liverpool aftur á toppinn Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 21. apríl 2019 16:45 Það þurfti þolinmæði til þess að leggja lið Cardiff í dag vísir/getty Liverpool fór aftur á topp ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta með tveggja marka sigri á Aroni Einari Gunnarssyni og félögum í Cardiff. Staðan var markalaus í hálfleik en Liverpool var þó með mikla yfirburði í leiknum eins og við mátti búast. Í seinni hálfleik báru sóknir gestanna loks árangur þegar Georginio Wijnaldum skilaði fyrirgjöf Trent Alexander-Arnold í netið af krafti. Sean Morrison var nálægt því að jafna fyrir heimamenn en skalli hans úr dauðafæri fór framhjá markinu. Morrison gaf svo vítaspyrnu eftir átök við Mohamed Salah. James Milner fór á punktinn og skoraði af öryggi. Liverpool vann leikinn 2-0 og situr því á ný á toppi deildarinnar, tveimur stigum á undan Manchestetr City. City á þó leik til góða. Cardiff er áfram í fallsæti, þremur stigum frá öruggu sæti þegar liðið á þrjá leiki eftir. Viðtal við Jurgen Klopp Viðtal við Neil Warnock Enski boltinn