Stefán tímabundið bankastjóri hjá Arion banka Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 23. apríl 2019 15:47 Stefán Pétursson stýrir Arion banka frá 1. maí og þar til nýr bankastjóri hefur verið ráðinn. Arion banki
Stefán Pétursson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Arion banka, tekur tímabundið við starfi bankastjóra frá 1. maí og þar til stjórn bankans hefur ráðið nýjan bankastjóra til frambúðar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum þar sem segir að stjórn hafi hafið undirbúning að ráðningu nýs bankastjóra. Höskuldur Ólafsson sagði starfi sínu lausu sem bankastjóri þann 12. apríl. Hann lýkur störfum um mánaðarmótin en hann hefur starfað hjá bankanum í slétt níu ár. Tilkynnt var um ráðningu hans þann 23. apríl árið 2010. Stefán er fæddur árið 1963. Hann tók við starfi framkvæmdastjóra fjármálasviðs Arion banka í ágúst 2010. Stefán hóf störf hjá Landsvirkjun 1991, fyrst sem yfirmaður lánamála en sem deildarstjóri fjármáladeildar frá 1995. Frá árinu 2002 var Stefán framkvæmdastjóri fjármálasviðs Landsvirkjunar auk þess sem hann sat í samninganefnd fyrirtækisins við orkufrekan iðnað. Stefán var í leyfi frá Landsvirkjun á árinu 2008 er hann stýrði fjárfestingarfélaginu Hydro-Kraft Invest hf. Á árunum 1986 til 1989 starfaði Stefán sem skrifstofustjóri hjá Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins. Stefán hefur gegnt fjölda trúnaðar- og stjórnunarstarfa á undanförnum árum. Hann situr nú í stjórn Valitor hf. og Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta fyrir hönd SFF. Stefán útskrifaðist með MBA-gráðu frá Babson College í Massachusetts í Bandaríkjunum árið 1991 og cand.oecon.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 1986.
Íslenskir bankar Vistaskipti Mest lesið Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Viðskipti erlent „Það er verið að ríkisvæða húsnæðismarkaðinn“ Viðskipti innlent Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Viðskipti erlent Umferðarofsi stofnar vegfarendum í hættu Samstarf Leiguverð heldur áfram að hækka Viðskipti innlent Leggja upp laupana í Lundúnum Viðskipti innlent Áföstu tapparnir stóðust ekki gæðapróf Neytendur Níu holu golfvöllur á gamalli landnámsjörð Samstarf Fasteignakaup fjárfesta vísbending um að fasteignaverð haldi áfram að hækka Viðskipti innlent Dýr smjörvi á Egilsstöðum vekur mikla athygli Neytendur Fleiri fréttir Leiguverð heldur áfram að hækka „Það er verið að ríkisvæða húsnæðismarkaðinn“ Leggja upp laupana í Lundúnum Annað tilboð borist í Skagann 3X Fasteignakaup fjárfesta vísbending um að fasteignaverð haldi áfram að hækka Skúli í Subway reisir glæsihótel við Jökulsárlón Búið að bjóða í Skagann 3X Brutu samkeppnislög með ótímabærri markaðssetningu Harpa vill létta lund veðurbugaðra höfuðborgarbúa Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu Berglind gengin í eigendahópinn Staðan ekki jafnsvört og sumir vilji meina Bjartmar ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri Íbúar Grafarholts geta tekið til matar síns á ný „Við erum bara að reyna að lifa af“ „Komin upp í þak“ í verðlagningu Nýir eigendur taka við Melabúðinni Festi festi kaup á Lyfju Spá aukinni verðbólgu HS Orka tryggir sér fjörutíu milljarða króna Mikil fjölgun tengifarþega en mun færri ferðast til Íslands Fleiri farþegar en minni sætanýting Mikill áhugi á þrotabúi Skagans 3X Formaður atvinnuveganefndar á hlut í félaginu sem KS keypti Landsbankinn til ráðgjafar vegna sölu Íslandsbanka KS hafi fest kaup á Kjarnafæði Norðlenska Sáraroðið frá Ísafirði notað til bjargar brenndum börnum í Afganistan Brúneggjamálið tekið fyrir í Hæstarétti Úr boltanum í tryggingarnar Leiðir dýra útrás Collab meðfram MBA-námi Sjá meira