Innlent

Á möguleika á að endurheimta peningana sína þökk sé skilvísri eldri konu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ekki kemur fram hve mikla peninga ræðir.
Ekki kemur fram hve mikla peninga ræðir. Vísir/Magnús Hlynur
Lögreglan á Suðurlandi auglýsir eftir eiganda peninga sem virðist hafa glatað þeim nærri Nettó á Selfossi á verkalýðsdaginn í gær, 1. maí. Mun skilvís eldri kona hafa komið á lögreglustöðina með peningana sem hún fann á fyrrnefndum stað. Óskaði hún eftir aðstoð við að finna eiganda þeirra.

Sá sem telur sig eiga peningana getur getið þeirra á lögreglustöðinni á Selfossi en gera þarf grein fyrir eignarhaldi á peningunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×