Fótbolti

Sjáðu þrennu Ronaldo og ótrúlega VAR dóminn

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Portúgal spilar til úrslita í fyrstu lokakeppni Þjóðadeildar UEFA eftir 3-1 sigur á Sviss í fyrri undanúrslitaviðureigninni.

Cristiano Ronaldo kom Portúgal yfir með glæsimarki beint úr aukaspyrnu í fyrri hálfleik.

Snemma í seinni hálfleik dró til tíðinda þegar dómari leiksins dæmdi vítaspyrnu á Sviss. Með hjálp myndbandsdómgæslu snéri hann hins vegar dómnum við og dæmdi vítaspyrnu á Portúgal. Ricardo Rodriguez jafnaði metin úr spyrnunni.

Undir lok leiksins þegar stefndi í framlengingu skoraði Ronaldo hins vegar tvö mörk, fullkomnaði þrennuna og skaut Portúgal í úrslitin.

Mörkin og atburðarásina í kringum myndbandsdómgæsluna má sjá hér að neðan. 



Klippa: Portúgal - Sviss 3-1
Klippa: VAR vítadómur í undanúrslitum Þjóðadeildarinnar





Fleiri fréttir

Sjá meira


×