Fótbolti

Mbappe mun ekki skrifa undir nýjan samning við PSG

Anton Ingi Leifsson skrifar
Mbappe í úrslitaleik franska bikarsins í ár.
Mbappe í úrslitaleik franska bikarsins í ár. vísr
Kylian Mbappe, framherji PSG og franska landsliðsins, hefur staðfest það við franska stórliðið að hann mun ekki skrifa undir nýjan samning við félagið.

Núverandi samningur heimsmeistarans við frönsku meistaranna rennur út árið 2022 og samkvæmt Marca hefur Mbappe engan áhuga á því að skrifa undir nýjan samning.







Hann hefur leikið með frönsku meisturunum frá því árið 2017 en hann er ekki talinn sáttur við það að þurfa að deila hæstu launum félagsins með Neymar. Hann vill fá allt í sinn eigin vasa.

Mbappe skoraði 33 mörk á síðustu leiktíð en hann hefur reglulega verið orðaður við Real Madrid. PSG hefur þó staðfest að hann sé ekki til sölu.

Vilji framherjinn ekki skrifa undir nýjan samning gæti PSG neyðst til þess að selja




Fleiri fréttir

Sjá meira


×