Handbolti

Ráðherra segir misskilning tefja umræðu um nýjan þjóðarleikvang í handbolta

Anton Ingi Leifsson skrifar
Misskilningur milli HSÍ og ríkisins gerir það að verkum að engar viðræður hafa átt sér stað um nýjan þjóðarleikvang fyrir handbolta á Íslandi.

Þetta staðfesti Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, í samtali við Reykjavík síðdegis í dag þar sem Lilja var spurð afhverju ríkið hefði ekki gefið handboltanum á Íslandi betri svör en hafa borist.

„Það ber fyrst að nefna að við settum á laggirnar nýja reglugerð um þjóðarleikvanga í fyrra. Í henni er kveðið á um formlegt ferli umsókna um þjóðleikvanga,“ sagði Lilja í spjalli sínu við Reykjavík síðdegis í dag.

„Hún er framfaraskref því hún bætir umgjörð og faglega ákvörðunartöku. Þar sem sérsamböndin þurfa að gera er að þau þurfa að vinna að þarfagreiningu, eiga samtöl við viðkomandi sveitarfélög og vinna umsókn í gegnum ÍSÍ, sem síðan sendir ráðuneytinu.“

„Það hefur ekki borist til okkar sú umsókn til að meta og fara yfir. Við munum að sjálfsögðu taka vel í þá umsókn frá viðkomandi sérsambandi með það að markmiði að bæta þjóðarleikvanga hér á landi.“

Lilja segir að fyrst og fremst þurfi HSÍ að vinna að greinngunni, innan sinna raða, áður en þeir sendi inn umsóknina. Sú umsókn og greining hafi aldrei borist.

„Það er sérsambandanna að fara í þarfagreininguna og tala við sveitarfélagið og koma svo til okkar. Ég vil líka nefna það að það er búið að setja á laggirnar nefnd um þjóðarleikvanga sem ÍSÍ er með. Það hefur heilmikið gerst,“ segir Lilja.

Úr landsleik í Laugardalshöll.vísir/vilhelm
Lilja bætir við að hún hafi átt samtal við borgarstjórann í Reykjavík, Dag B. Eggertsson, og þau bæði hafa verið sammála um það, að viljinn sé fyrir hendi.

„Ég hef verið í sambandi við borgarstjórann og við höfum farið yfir það hvernig við getum komið til móts við HSÍ. Auðvitað erum við handboltaþjóð. Auðvitað viljum við hafa þetta í góðum farvegi og við höfum verið að leggja grunninn að því.“

„Íþróttastarf og árangur okkar er framúrskarandi. Við þurfum að hafa aðstöðuna þannig og okkar metnaður er til þess,“ en HSÍ þarf hins vegar að klára sína umsókn að fullnustu, segir Lilja:

„Umsóknin þarf að koma. Ákveðin þarfagreining þarf að eiga sér stað. Ég hef verið í sambandi við mína embættismenn, því það vita allir hér í ráðuneytinu að ég er sjálf mikil íþróttamanneskja og sæki landsleiki reglulega og aðra leiki. Mér finnst afskaplega mikilvægt að við sníðum alla umgjörð í kringum menningarstarf og við gerum það eins vel og hægt er.“

„Við gerum ákveðnar kröfur til sérsambandanna að þau vinni sína heimavinnu. Ég hef ítrekað spurt um hvort að þessi umsókn sé komin hingað inn. Mér skilst að svo sé ekki.“

Það er þó tilhlökkun í Lilju að umsóknin berist loks inn á borð ríkisins og að hún fari að skoða málið af alvöru.

„Ég hlakka til að fá þessa umsókn og fara yfir hana eftir að það er búið að vinna þessa heimavinnu. Þetta ráðuneyti er opið fyrir öllu frá því frábæra fólki sem er að vinna frábært starf um allt land til að efla íþróttir og heilsu landsmanna,“ sagði Lilja.

Viðtalið í heild sinni má heyra í glugganum efst í fréttinni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×