John Terry orðaður við stjórastarfið hjá Newcastle United Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. júlí 2019 09:00 John Terry fagnar sigri Aston Villa í umspilinu um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni. Getty/ Chloe Knott
Frank Lampard gæti mætt góðvini sínum í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð ef eitthvað er að marka slúðrið hjá Guardian í dag. Newcastle United er enn að leita að eftirmanni Rafael Benítez og nú er John Terry orðaður við starfið. John Terry hjálpaði Aston Villa að komast aftur upp í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð sem aðstoðarmaður Dean Smith. En er núna rétti tíminn til að færa sig yfir í knattspyrnustjórastólinn? John Terry var fyrirliði Chelsea-liðsins í þrettán ár og var einnig fyrirliði enska landsliðsins. Hann er mikill leiðtogi á velli og margir eru áhugasamir um hvernig honum myndi ganga sem knattspyrnustjóri. Reynsla og þekking á leiknum er vissulega til staðar.Football rumours: John Terry to take over at Newcastle United? https://t.co/Wck1RpglZw — Guardian sport (@guardian_sport) July 9, 2019Frank Lampard var aðeins í eitt ár í knattspyrnustjórastólnum hjá Derby áður en hann fékk stóra tækifærið hjá Chelsea. Lampard er tveimur árum eldri en Terry eða á sama aldri og Jose Mourinho var þegar hann tók fyrst við Chelsea-liðinu árið 2004. John Terry endaði ferillinn hjá Aston Villa og færði sig síðan upp í þjálfarateymi liðsins eftir að skórnir fóru upp á hillu. Terry er líka sagður hafa áhuga á að taka við Newcastle-liðinu sem endaði í þrettánda sæti í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Hann var kannski ekki efstur á óskalistanum en maður með hans litlu reynslu af þjálfun fagnar því bara að vera á listanum. Newcastle hefur fengið nei frá mönnum eins og Jose Mourinho og Steven Gerrard en fram að þessu hefur verið líklegast að Mikel Arteta, aðstoðarmaður Pep Guardiola hjá Manchester City, fái starfið. Newcastle seldi á dögunum sóknarmanninn Ayoze Pérez til Leicester sem eru ekki góðar fréttir fyrir nýjan knattspyrnustjóra. Sá hinn sami þarf líka tíma til að kreista eitthvað út úr leikmannamarkaðnum áður en hann lokar í byrjun ágúst.
Enski boltinn Mest lesið Líflátshótunum rignir yfir Víkinga: „Djöfull er þetta lasið“ Fótbolti Tiger svaf ekki eftir morðtilræðið gegn Trump Golf Einn sá skrautlegasti mættur á Opna breska Golf Víkingar með augun á leik í Albaníu í kvöld Fótbolti „Getur ennþá orðið stórkostlegt tímabil“ Fótbolti Enska sambandið vill Guardiola og er tilbúið að bíða Enski boltinn Heimsleikarnir gætu byrjað klukkan sex um morguninn Sport Segja að Alexander-Arnold sé opinn fyrir því að fara til Real Madrid Enski boltinn Ætla sér inn á Ólympíuleikana með hjálp dómstóla Sport McIlroy hunsaði Tiger óvart í mánuð Sport Fleiri fréttir Fyrrum leikmaður Everton í teymi Slot Enska sambandið vill Guardiola og er tilbúið að bíða Liðsfélagi Hákonar á leið til United Segja að Alexander-Arnold sé opinn fyrir því að fara til Real Madrid Wiegman gaf lítið fyrir það að hún gæti tekið við enska karlalandsliðinu Como viðurkennir að leikmaður liðsins hafi kallað Hwang Jackie Chan Neville vill enskan þjálfara fyrir landsliðið Frakkar í mál og vesen hjá Chelsea vegna rasískra söngva Argentínumanna Kynþáttafordómar og hnefarnir látnir tala í æfingaleik Wolves og Como Ten Hag hundfúll eftir tap fyrir Rosenborg: „Það eru kröfur hjá United“ Milljarður punda í húfi fyrir leikmenn Englands Aston Villa að ganga frá kaupum á Onana Man. Utd hefur borgað 171 milljarð í vexti af skuldum frá 2005 Jonny Evans verður áfram hjá Manchester United Sancho sættist við Ten Hag og er mættur aftur á æfingar Liverpool vill fá fund um stúkuslagsmál Darwin Núnez Darwin Nunez slóst við áhorfendur í stúkunni Aston Villa losar Coutinho af launaskrá og lánar til uppeldisfélagsins Eigendur Liverpool að kaupa franskt félag „Félög alls staðar að úr heiminum vildu fá hann en hann valdi okkur“ Man. Utd hækkaði tilboðið í Branthwaite Bobby Firmino orðinn prestur Man United á eftir fleiri Hollendingum en De Ligt Donny van de Beek snýr við blaðinu og fer til Spánar Michael Olise mættur til læknisskoðunar hjá Bayern München Jóhann lenti óvænt í flugi með formanninum og fer ekki fet Vistaskipti Kilman gætu breytt framtíð E-deildarliðs Maidenhead Jóhann Berg áfram hjá Burnley Sky biður Nottingham Forest afsökunar Man. Utd bannað að kaupa varnarmann en leyft að spila Sjá meira