Eiður Smári sendi Lampard kveðju Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. júlí 2019 08:30 Eiður Smári Guðjohnsen og Frank Lampard fagna saman marki þess fyrrnefnda á móti West Bromwich Albion árið 2004. Getty/Shaun Botterill/
Eiður Smári Guðjohnsen er ánægður með nýja knattspyrnustjórann hjá Chelsea ef marka má færslu hans á samfélagsmiðlum. Frank Lampard var í gær ráðinn knattspyrnustjóri Chelsea og skrifaði þessi goðsögn hjá Chelsea þá undir þriggja ára samning. Lampard hefur ekki mikla reynslu af þjálfun en hann er fjórði leikjahæsti leikmaður Chelsea frá upphafi og enginn hefur skorað fleiri mörk fyrir Chelsea en Lampard. Fári þekkja því Stamford Bridge betur en hinn 41 árs gamli Frank Lampard. Eiður Smári og Frank Lampard eru góðir vinir frá þeim tíma þegar þeir spiluðu saman hjá Chelsea. Eiður Smári sendi vini sínum þessa kveðju hér fyrir neðan en hún kom inn á Instagram síðu Eiðs Smára. View this post on InstagramIt’s time to enjoy your time on the sidelines @franklampard So excited for you and all @chelseafc fans A post shared by Eidur Gudjohnsen (@eidurgudjohnsen) on Jul 4, 2019 at 2:08pm PDT „Núna er tíminn til að njóta þess að vera á hliðarlínunni. Mjög spenntur fyrir þína hönd sem og allra stuðningsmanna Chelsea,“ skrifaði Eiður Smári og birti gamla mynd af sér og Lampard þegar þeir voru báðir á varamannabekk Chelsea-liðsins. Eiður Smári var keyptur til Chelsea sumarið 2000 eða ári fyrr en Lampard. Þeir léku síðan saman hjá Chelsea frá 2001 til 2006. Ofan á það að vera liðsfélagar þá eru þeir einnig jafnaldrar, báðir fæddir árið 1978. Eiður Smári og Frank Lampard upplifðu það líka saman þegar Chelsea breyttist úr meðalliði í ensku úrvalsdeildinni í besta lið deildarinnar. Innkoma rússneska eigandans Roman Abramovich breytti öllu fyrir félagið og bæði Lampard og Eiður Smári voru allt í öllu tímabilið 2004-05 og 2005-06 þegar Chelsea vann fyrstu Englandsmeistaratitlana sína frá 1955.
Enski boltinn Mest lesið Líflátshótunum rignir yfir Víkinga: „Djöfull er þetta lasið“ Fótbolti Tiger svaf ekki eftir morðtilræðið gegn Trump Golf Einn sá skrautlegasti mættur á Opna breska Golf „Getur ennþá orðið stórkostlegt tímabil“ Fótbolti Víkingar með augun á leik í Albaníu í kvöld Fótbolti Enska sambandið vill Guardiola og er tilbúið að bíða Enski boltinn Heimsleikarnir gætu byrjað klukkan sex um morguninn Sport Segja að Alexander-Arnold sé opinn fyrir því að fara til Real Madrid Enski boltinn McIlroy hunsaði Tiger óvart í mánuð Sport Ætla sér inn á Ólympíuleikana með hjálp dómstóla Sport Fleiri fréttir Fyrrum leikmaður Everton í teymi Slot Enska sambandið vill Guardiola og er tilbúið að bíða Liðsfélagi Hákonar á leið til United Segja að Alexander-Arnold sé opinn fyrir því að fara til Real Madrid Wiegman gaf lítið fyrir það að hún gæti tekið við enska karlalandsliðinu Como viðurkennir að leikmaður liðsins hafi kallað Hwang Jackie Chan Neville vill enskan þjálfara fyrir landsliðið Frakkar í mál og vesen hjá Chelsea vegna rasískra söngva Argentínumanna Kynþáttafordómar og hnefarnir látnir tala í æfingaleik Wolves og Como Ten Hag hundfúll eftir tap fyrir Rosenborg: „Það eru kröfur hjá United“ Milljarður punda í húfi fyrir leikmenn Englands Aston Villa að ganga frá kaupum á Onana Man. Utd hefur borgað 171 milljarð í vexti af skuldum frá 2005 Jonny Evans verður áfram hjá Manchester United Sancho sættist við Ten Hag og er mættur aftur á æfingar Liverpool vill fá fund um stúkuslagsmál Darwin Núnez Darwin Nunez slóst við áhorfendur í stúkunni Aston Villa losar Coutinho af launaskrá og lánar til uppeldisfélagsins Eigendur Liverpool að kaupa franskt félag „Félög alls staðar að úr heiminum vildu fá hann en hann valdi okkur“ Man. Utd hækkaði tilboðið í Branthwaite Bobby Firmino orðinn prestur Man United á eftir fleiri Hollendingum en De Ligt Donny van de Beek snýr við blaðinu og fer til Spánar Michael Olise mættur til læknisskoðunar hjá Bayern München Jóhann lenti óvænt í flugi með formanninum og fer ekki fet Vistaskipti Kilman gætu breytt framtíð E-deildarliðs Maidenhead Jóhann Berg áfram hjá Burnley Sky biður Nottingham Forest afsökunar Man. Utd bannað að kaupa varnarmann en leyft að spila Sjá meira