Enski boltinn

Stuðningsmenn Man. Utd. vongóðir eftir að Fernandes felldi tár

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Fernandes lék afar vel með Sporting á síðasta tímabili.
Fernandes lék afar vel með Sporting á síðasta tímabili. vísir/getty
Bruno Fernandes felldi tár eftir æfingaleik Sporting og Valencia í gær. Valencia vann leikinn, 1-2.

Fernandes hefur verið þrálátlega orðaður við Manchester United í allt sumar. 

Margir stuðningsmenn félagsins túlkuðu því tárin sem Fernandes felldi eftir leikinn í gær sem kveðjutár.

Fernandes, sem er portúgalskur landsliðsmaður, átti frábært tímabil með Sporting í fyrra. Hann skoraði þá 31 mark í 50 leikjum í öllum keppnum.

Félögin á Englandi hafa frest til 8. ágúst til að kaupa og selja leikmenn.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×