Enski boltinn

BBC segir Lille búið að samþykkja tilboð Arsenal í Pepe

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Nicolas Pepe
Nicolas Pepe vísir/getty
BBC segir franska félagið Lille hafa samþykkt tilboð Arsenal í Fílbeinsstrendinginn Nicolas Pepe.

Arsenal er sagt hafa boðið 80 milljón evrur í kantmanninn en félagið mun þó borga upphæðina í raðgreiðslum.

Leikmaðurinn á þó enn eftir að semja um kaup og kjör við Skytturnar. Búist er við því að hann verði orðinn leikmaður Arsenal á næstu tveimur sólarhringum.

Ítalska félagið Napólí var líka á eftir Pepe og var tilbúið að borga 80 milljónirnar en Pepe og hans menn höfnuðu tilboði Napólí.

Pepe skoraði 23 mörk fyrir Lille á síðasta tímabili en hann spilar almennt á hægri vængnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×