Enski boltinn

Hazard segir nýjasta leikmann Chelsea geta orðið einn þann besta í heimi

Anton Ingi Leifsson skrifar
Pulisic í æfingarleik með Chelsea.
Pulisic í æfingarleik með Chelsea. vísir/getty
Eden Hazard, sem yfirgaf Chelsea í sumar fyrir Real Madrid, segir að Christian Pulisic geti orðið einn sá besti í heimi er hann byrjar að spila með Chelsea.

Pulisic var keyptur til Chelsea í janúar en var strax lánaður til Dortmund út leiktíðina. Enska félagið borgaði 58 milljónir punda fyrir hann en Hazard hefur mikla trú á honum.

„Pulisic getur orðið einn sá besti í framtíðinni. Hann getur orðið stjarna. Nú er hann hjá einu besta félagi í heimi og hann er hæfileikaríkur leikmaður,“ sagði Hazard við The Associated Press.







Eins og áður segir ná Hazard og Pulisic ekki að leika saman því nú þegar Bandaríkjamaðurinn Pulisic er mættur þá er Hazard farinn til Spánar þar sem hann mun leika með Real Madrid.

Pulisic byrjaði sinn fyrsta leik fyrir Chelsea er liðið vann 2-1 sigur á Barcelona í Rakuten-bikarnum á dögunum og fróðlegt verður að fylgjast með Bandaríkjamanninum í enska boltanum í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×