Innlent

Gekk um miðborg Reykjavíkur sveiflandi hnífi

Birgir Olgeirsson skrifar
Lögreglumenn fóru á vettvang.
Lögreglumenn fóru á vettvang. Vísir/Vilhelm
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði upp á manni sem gekk um miðborg Reykjavíkur sveiflandi hnífi. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar þar sem talin eru upp helstu verkefni dagsins.

Tilkynning barst lögreglu um manninn og var farið á vettvang þar sem lögreglumenn komu fljótlega auga á manninn. Var hann handtekinn og færður á lögreglustöðina á Hverfisgötuna en lögreglan tekur fram að ekki sé vitað á þessari stundu hvað honum gekk til.

Þá var tilkynnt um innbrot í bifreið í Hafnarfirði og einnig um innbrot í fyrirtæki í Hafnarfirði þar sem ýmsum verðmætum var stolið, þar á meðal fartölvu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×