Tónlist

Teitur Magnússon játar syndir sínar í nýju myndbandi

Hjalti Freyr Ragnarsson skrifar
Teitur flýtur.
Teitur flýtur. skjáskot
Lagið Skriftargangur er síðasta smáskífan sem kemur út af annarri plötu Teits Magnússonar, Orna. Í dag kom út myndband við lagið í leikstjórn leikarans geðþekka Jörundar Ragnarssonar.

Textinn er gömul þjóðvísa, sú sama og er notuð í Skriftagangur eftir Hinn íslenska þursaflokk. Seinna versið er svo eins konar nútímaútgáfa af upprunalega textanum: 

pusher með pokarass

áttu ekki hluta gramms

að kríta á mig til mánudags

ég hef stolið flatskjám úr gám

bæði hvítum og blám

ég fann eitt sinn lögg á kúti

sumarið sem ég lá úti

Steingrímur Teague úr Moses Hightower syngur með Teiti í laginu, en hann er hluti Æðisgengisins, tónleikahljómsveitar Teits. Í því eru alla jafna Ingibjörg Turchi, Hreiðar Már Árnason, Árni Guðjónsson, Leifur Björnsson og Arnljótur Sigurðsson.

Myndbandið nýja er tekið upp í Sandgerði og í nágrenni, og í kringum Grindavík. Íslensk náttúrufegurð nýtur sín í því, passlegur skammtur af „touristcore“ en vegið er upp á móti því með leikrænni skriftargangsathöfn og öðrum skemmtilegheitum.

Það skiptast á snjór og þíða í myndbandinu, en smiðir þess segja það hafa verið „tekið upp á tveimur dögum þótt að það líti út fyrir að það séu fleiri árstíðir.“ Veðrið hafi einfaldlega breyst „svo ört þessa tvo daga sem það var tekið upp á.“

Teitur sjálfur og Árni Vilhjálmsson leika í myndbandinu, en Árni flutti einmitt þvottavél fyrir Teit í myndbandi fyrir eigið lag sem kom út í vor. Prestshempuna sem Árni klæðist á toppi Sandgerðisvita fengu þeir kumpánar lánaða frá Séra Pétri í óháða söfnuðinum. 

Hugmyndin að myndbandinu hefur verið að þróast með þeim félögum undanfarið ár og má segja að það fjalli um hvernig allir eða flestir þurfi að ganga sinn skriftargang einhverntíma á ævinni. Tökumaður var Sebastian Ziegler og sá Haukur Valdimar Pálsson um klippingu.

Frumsýningarpartý verður haldið í kvöld á Vinyl Bistro á milli 20-21. Hér að neðan má sjá myndbandið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.