Samkomulag í höfn í deilu um stjórnarmenn Lífeyrissjóðs verslunarmanna
Í tilkynningu frá VR segir að þeir sem stjórnarmenn sem nú sitja í stjórninni í nafni VR muni láta af störfum.
Í stað þeirra taka sæti í stjórninni nýir stjórnarmenn samkvæmt ákvörðun VR frá 14. ágúst síðastliðnum. Þá verður dómsmál sem rekið hefur verið vegna tilnefningar í stjórnina fellt niður.
„VR fellst á sjónarmið sem fram hafa komið af hálfu lífeyrissjóðsins og Fjármálaeftirlitsins um að óæskilegt sé að þeir sem fara með vald til tilnefningar í stjórn sjóðsins hlutist til um ákvarðanir sjóðsstjórnar með því að skipta út stjórnarmönnum áður en kjörtímabili þeirra lýkur og vonar að slík inngrip heyri nú sögunni til.
VR lýsir yfir mikill ánægju með þessi málalok enda nauðsynlegt að ljúka deilu VR við sjóðinn og Fjármálaeftirlitið sem fyrst og koma ró á starfsemi sjóðsins. Allir aðilar hafa haft hagsmuni sjóðsins í fyrirrúmi og þessi málalok eru gerð í sátt allra aðila með framtíð sjóðsins að leiðarljósi.
VR þakkar fráfarandi stjórnarmönnum Lífeyrissjóðs verzlunarmanna fyrir vel unnin störf í þágu sjóðsins og félagsins og óskar þeim velfarnaðar,“ segir í tilkynningu VR.
Tengdar fréttir
Fjórum stjórnarmeðlimum LV og varamönnum þeirra birt stefna VR
Fjórum meðlimum stjórnar Lífeyrissjóðs Verzlunarmanna hefur verið birt stefna VR eftir að flýtimeðferð var samþykkt í héraðsdómi í gær. Einnig var stefna birt varamönnum í stjórn og var því alls átta birt stefna auk Fjármálaeftirlitsins og Lífeyrissjóðnum sjálfum.
VR stefnir Fjármálaeftirlitinu
Stjórn VR hefur samþykkt að stefna Fjármálaeftirlitinu. VR afhenti Héraðsdómi Reykjavíkur stefnuna í dag.
Mál VR gegn FME fær flýtimeðferð fyrir héraðsdómi
Héraðsdómur Reykjavíkur samþykkti í dag að dómsmál VR gegn Fjármálaeftirlitinu hlyti flýtimeðferð. Með stefnu á hendur Fjármálaeftirlitinu (FME) og Lífeyrissjóði verzlunarmanna (LV) vill VR að ákvörðun Fjármálaeftirlitsins frá 3. júlí verði ógild. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef VR.