Lionel Messi og Luis Suárez voru ekki með Barcelona í leiknum í kvöld en það kom ekki að sök.
Betis komst reyndar yfir með marki Nabils Fekir á 15. mínútu en fjórum mínútum fyrir hálfleik jafnaði Griezmann með sínu fyrsta marki í keppnisleik fyrir Barcelona.
Á 50. mínútu skoraði franski heimsmeistarinn annað mark sitt með góðu skoti í fjærhornið. Griezmann er fyrsti leikmaður Barcelona sem skorar tvö mörk í fyrsta heimaleik sínum fyrir félagið síðan Rivaldo afrekaði það gegn Real Sociedad 31. ágúst 1997.
- @AntoGriezmann is the 1st player to score a brace on his home league debut for FC Barcelona since Rivaldo on 31 August 1997 (3-0 win vs Real Sociedad). #BarçaBetis#ForçaBarça
— Gracenote Live (@GracenoteLive) August 25, 2019
Carles Pérez kom Barcelona í 3-1 á 56. mínútu og fjórum mínútum síðar skoraði Jordi Alba fimmta mark liðsins. Þrjú mörk á tíu mínútum hjá Spánarmeisturunum.
Arturo Vidal skoraði fimmta og síðasta mark Barcelona á 77. mínútu. Griezmann átti stoðsendinguna á Sílemanninn.
Þremur mínútum síðar minnkaði Loren Morón muninn með stórkostlegu skoti upp í vinkilinn. Lokatölur 5-2, Barcelona í vil.
Mörkin úr leiknum má sjá hér fyrir neðan.