Balotelli skoraði sitt fyrsta mark í ítölsku deildinni í fjögur ár

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Balotelli er kominn á blað með Brescia.
Balotelli er kominn á blað með Brescia. vísir/getty
Mario Balotelli skoraði sitt fyrsta mark í ítölsku úrvalsdeildinni í fjögur ár þegar Brescia laut í lægra haldi fyrir Napoli, 2-1, í dag.

Balotelli gekk í raðir nýliða Brescia fyrir tímabilið og opnaði markareikninginn með liðinu í dag.

Dries Mertens kom Napoli yfir á 13. mínútu eftir sendingu frá Jose Callejón. Í uppbótartíma fyrri hálfleiks jók gríski miðvörðurinn Kostas Manolas muninn í 2-0.

Á 67. mínútu minnkaði Balotelli muninn í 2-1 með skalla eftir hornspyrnu hins bráðefnilega Sandro Tonali.

Þetta var fyrsta mark hans í ítölsku úrvalsdeildinni síðan hann skoraði í 2-3 sigri AC Milan á Udinese 22. september 2015.

Mark Balotellis dugði Brescia þó ekki til og Napoli fagnaði sigri. Napoli er í 4. sæti deildarinnar en Brescia í því fjórtánda.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira