Juventus á toppinn eftir þriðja sigurinn í röð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ronaldo skoraði annað mark Juventus.
Ronaldo skoraði annað mark Juventus. vísir/getty
Juventus vann 2-0 sigur á SPAL í fyrsta leik dagsins í ítölsku úrvalsdeildinni.

Þetta var þriðji sigur Juventus í röð en með honum komst liðið á topp deildarinnar. Inter getur endurheimt toppsætið fái liðið stig gegn Sampdoria síðar í dag.

Etrit Berisha átti góðan leik í marki SPAL en hann kom engum vörnum við þegar Miralem Pjanic kom Juventus yfir með frábæru skoti á lokamínútu fyrri hálfleiks.

Á 78. mínútu sendi Paolo Dybala fyrir á kollinn á Cristiano Ronaldo sem skoraði annað mark Juventus. Portúgalinn er kominn með þrjú deildarmörk á tímabilinu.

Juventus hefur unnið fimm af fyrstu sex leikjum sínum í ítölsku úrvalsdeildinni og gert eitt jafntefli.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira