Innlent

Enn ekkert spurst til Önnu Helgu

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Lögreglan á höfuðborgarsvæinu lýsti eftir Önnu Helgu í gær.
Lögreglan á höfuðborgarsvæinu lýsti eftir Önnu Helgu í gær. Vísir/Hanna
Enn hefur ekkert spurst til Önnu Helgu Pétursdóttur, 63 ára konu sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir í gær.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hefur nokkuð af ábendingum borist eftir að lýst var eftir Önnu Helgu. Hún er þó enn ófundin.

Í tilkynningu lögreglu frá því í gær segir að síðast sé vitað um ferðir Önnu Helgu í nágrenni Holtagarða í Reykjavík að morgni þriðjudags 24. september.

Anna Helga er grannvaxin, 165 sentímetrar á hæð og með stutt, grátt hár. Hún var klædd í dökkbláar, víðar gallabuxur, brúna gönguskó og grænan/brúnan jakka. Anna Helga notar gleraugu og gæti jafnframt verið með loðhúfu á höfði.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Önnu Helgu, eða vita hvar hún er niðurkomin, eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 112. Upplýsingum má einnig koma á framfæri í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Anna Helga Pétursdóttir.Mynd/lögregla

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×