Juventus kom til baka og tyllti sér á toppinn í fjarveru Ronaldo

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Pjanic fagnar sigurmarkinu
Pjanic fagnar sigurmarkinu vísir/getty
Ítalíumeistarar Juventus heimsóttu Brescia í 5.umferð ítölsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld. 

Leikurinn byrjaði líkt og í draumi fyrir heimamenn því Alfredo Donnarumma kom Brescia yfir strax á 4.mínútu.

Forystan hélt allt þar til á 40.mínútu þegar Jhon Chancellor varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark og staðan því jöfn í leikhléi. 

Á 63.mínútu skoraði Miralem Pjanic það sem reyndist sigurmark leiksins.

Cristiano Ronaldo var fjarri góðu gamni í kvöld en Juventus hefur 13 stig á toppi deildarinnar, stigi meira en Inter sem á leik til góða á morgun þegar þeir fá Lazio í heimsókn í stórleik umferðarinnar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira