Vísir setti sig í samband við Harald Guðna Eiðsson, upplýsingafulltrúa Arion banka, í gærkvöldi sem sagði að það væru engar hópuppsagnir fyrirhugaðar í dag. Haraldur vildi að öðru leyti ekki tjá sig um mögulegar uppsagnir í bankanum á næstunni. Nú stæði yfir stefnumótunarvinna, sem hann treysti sér ekki að fullyrða um hvenær lyki.
Starfsmenn Arion sem fréttastofa hefur rætt við síðastliðinn sólarhring segja nokkurn titring innan bankans vegna fregnanna. Frétt Mannlífs hafi verið mikið reiðarslag og verið sé að „róa fólk,“ eins og einn starfsmaður Arion sagði í samtali við fréttastofu. Þetta sé erfiður tími fyrir starfsmenn.
Engar upplýsingar hafi borist frá stjórnendum um uppsagnir, enn sem komið er. Það hafi þó örlað á stressi í starfsliðinu allt frá því að tölvupóstur barst frá bankastjóranum, Benedikt Gíslasyni, í upphafi júlímánaðar.
Í póstinum sagði Benedikt, sem þá var nýtekinn til starfa, að það væri honum ekkert sérstakt kappsmál að Arion yrði stærsti banki á Íslandi. Mikilvægara væri að bankinn yrði framsækinn og skili hluthöfum arði.
Í yfirlýsingum sínum eftir uppgjör annars ársfjórðungs í upphafi ágústmánaðar tók hann í sama streng. Bankinn myndi „móta áherslur í stefnu og starfsemi bankans til næstu ára svo bankinn sé sem best í stakk búinn til að mæta þeim miklu breytingum sem eru að eiga sér stað á fjármálaþjónustu,“ eins og hann komst að orði.

Benedikt skerpti á þessari sýn sinni í viðtali við Markaðinn fyrr í þessum mánuði. Þar ræddi hann um árangur bankans af „stafrænu vegferð“ sinni og færri heimsóknir í útibú bankans. „Það gefur okkur tækifæri til að hagræða í rekstrinum enda þurfum við að sníða okkur stakk eftir vexti. Ef efnahagsreikningurinn dregst saman þá minnka umsvifin að sama skapi,“ sagði Benedikt.
Framkvæmdastjórar horfið á braut
Rekstur bankans hefur ekki þótt ásættanlegur að undanförnu, þannig var afkoma hans á öðrum ársfjórðungi þessa árs „ekki nógu góð,“ að sögn Benedikts. Á fyrstu sex mánuðum ársins var arðsemin aðeins rúmlega þrjú prósent en á síðustu misserum hefur talsvert útlánatap, einkum vegna United Silicon í Helguvík og gjaldþrots flugfélaganna WOW air og Primera air, sett þar strik í reikninginn. Tap Valitors bætti heldur ekki úr skák, en dótturfélagið tapaði tæplega 3 milljörðum króna á fyrri helmingi ársins. Því hafa flestir búist við að einhverra hagræðinga væri að vænta hjá bankanum, sem nú þegar hafa sést í uppsögnum og brotthvarfi framkvæmdastjóra.Þannig fækkaði starfsmönnum bankans um 20 á öðrum ársfjórðungi þessa árs, auk þess sem Jónína S. Lárusdóttir, framkvæmdastjóri lögfræðisviðs, og Rakel Óttarsdóttir, framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs, sögðu skilið við bankann í september. Alls hefur starfsmönnum Arion fækkað um 50 á síðastliðnu ári og er fjöldi stöðugilda hjá bankanum nú um 800.