Er þetta veitingastaðurinn sem fólk hefur hvíslað um síðan þú kvaddir IKEA?
„Ég get ekki neitað því,“ segir Þórarinn í samtali við Vísi. Ekki leið nema hálfur mánuður frá því að hann sagði starfi sínu lausu hjá IKEA í apríl síðastliðnum þangað til að fréttir birtust af meintum pizzustaðakeðjuáformum hans. Þá vísaði hann fregnunum til föðurhúsanna, en bætti við að það væri of snemmt að spá fyrir um framtíðina.
Veitingaáhugi Þórarins ætti að koma fáum á óvart - „hjartað mitt liggur þar, það er engum blöðum um það að fletta. Þar er mín sérstaða og sérhæfing. Ég hef unnið við það alla mína ævi þó svo að ég hafi tekið öll þessi ár í IKEA, og í raun breytt því í veitingastað,“ segir Þórarinn.
Það er ekki ofsögum sagt; Þórarinn hefur áður starfað sem bakarameistari og yfirbakari hjá Sveini bakara, auk þess sem hann kom að stofnun Domino‘s árið 1993 og veitti fyrirtækinu forystu á árunum 2000 til 2005.
Vonandi spennandi fyrir almenning
„Þannig að þarna þykja mér sóknarfærin liggja,“ segir Þórarinn. Áður en hann sagði skilið við IKEA var Þórarinn iðinn við að gagnrýna verðlag á íslenskum veitingastöðum, við misjafna hrifningu. Það verður því spennandi sjá hvort honum takist að halda verðlagningnu þannig að Íslendingar upplifi sig ekki „einnota og gáfnafari þeirra og verðvitund [verði] misboðið,“ eins og Þórarinn komst sjálfur að orði í upphafi árs.Hann segist þó ekki geta tjáð sig nánar um nýja veitingastaðinn að svo stöddu, eins og hvort hann muni sérhæfa sig í pizzum eða öðrum mat. „Það er ekki sniðugt að sýna spilin sín of snemma,“ segir Þórarinn. Hugmyndin á bakvið staðinn sé þó mótuð, búið sé að útvega húsnæði fyrir staðinn á höfuðborgarsvæðinu og áætlar Þórarinn að það muni taka nokkra mánuði að standsetja það fyrir rekstur.
Hann segir að hann muni þó greina nánar frá veitingastaðnum þegar fram líða stundir. „Þetta eru spennandi tímar, bæði fyrir mig og vonandi almenning í landinu,“ segir Þórarinn, verðandi veitingastaðarekandi.