Arnar Davíð Jónsson getur brotið blað í íslenskri keilusögu í dag.
Arnar tryggði sér í morgun sæti í úrslitum á Kuwait International Open 2019. Hann skilaði leikjum upp á 272 að meðaltali.
Mótið er hluti af PBA, eða bandarísku atvinnumannamótaröðinni sem er sú stærsta í heimi. Arnar mun því spila um PBA-titil sem enginn Íslendingur hefur áður gert.
Hann er þegar búinn að tryggja sér 3,1 milljón króna í verðlaunafé og með sigri á mótinu fær hann 6,2 milljónir króna.
Úrslitin hefjast klukkan 13:00 í dag.
