Innlent

Þriðjung allra dauðsfalla má rekja til lífsstíls

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar

Nýlega kom út ritröð um yfirlit heilbrigðismála aðildarlanda ESB ásamt Íslandi og Noregi. Er þetta í fyrsta skipti sem gerð er sérstök greining á heilbrigðiskerfi og heilsufari á Íslandi.

Góðu fréttirnar eru að almennt er heilbrigðisástand fólks gott á Íslandi og stendur íslenska heilbrigðiskerfið sig tiltölulega vel að sjá öllum fyrir góðu aðgengi að hágæða þjónustu. Minna efnaðir finna helst fyrir mismunun þegar kemur að lyfjakaupum og tannlæknaþjónustu.

Síðustu ár hefur myndast munur á lífslíkum eftir menntunarstigi.vísir/hafsteinn

Lífslíkur jukust um næstum þrjú ár frá 2000 til 2017, þegar þær náðu 82,6 árum en meðaltalið er 80,9 ár í Evrópu. Þó hefur komið í ljós að munur eftir menntunarstigi hefur aukist á síðustu árum. Þannig lifa konur með mikla menntun um þremur og hálfu ári lengur en þær minna menntuðu og mikið menntaðir karlar lifa næstum fimm árum lengur en þeir sem hafa litla menntun.

Sjötta hvert dauðsfall vegna mataræðis

Samkvæmt skýrslunni er talið að rúmlega þriðjung allra dauðsfalla á Íslandi megi rekja til lífsstílsáhættuþátta sem hægt er að breyta.

Slæmar matarvenjur leiddu til rúmlega eins sjötta allra dauðsfalla árið 2017, sem rekja mátti til of lítillar ávaxta- og grænmetisneyslu en of mikillar neyslu á sykri og salti.

Áhættuþættir vegna lífsstíls útskýra þriðjung dauðsfalla á Íslandi. Það eru þættir eins og mataræði, reykingar, hreyfingarleysi og áfengisneysla.vísir/hafsteinn

Þótt reykingar og áfengisneysla séu minni á Íslandi en í nokkru öðru Evrópulandi þá er áætlað að tóbak hafi leitt til 15% af öllum dauðsföllunum og áfengisneysla 1% en lítil hreyfing útskýrir 3% dauðsfalla.

Þrátt fyrir að Íslendingar, bæði börn og fullorðnir, séu sérstaklega duglegir að hreyfa sig samkvæmt þessari samantekt er offita talið meiriháttar lýðheilsuvandamál hér á landi. Er það tengt slæmum matarvenjum eins og ofar kom fram.

Fjórði hver fullorðinn Íslendingur er með offitu samkvæmt útreikningi á BMI-stuðli og hefur hlutfallið aukist mikið síðasta áratuginn. Fimmtungur fimmtán ára ungmenna voru yfir kjörþyngd eða of feit og var það þriðja hæsta hlutfallið í Evrópu.


Tengdar fréttir

Er offita sjúkdómur?

Misjafnt er hvaða augum umræðan um offitu á Íslandi er litin. Annars vegar að offita sé sjúkdómur og heilbrigðiskerfið þurfi að bregðast við. Hins vegar að ekki eigi að sjúkdómsvæða feitt fólk heldur líta til heilsuvenja burtséð frá holdafari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×