Philippe Coutinho skoraði þrjú mörk og lagði upp tvö þegar Bayern München rúllaði yfir Werder Bremen, 6-1, í þýsku úrvalsdeildinni í dag.
You've earned this one, @Phil_Coutinho! #FCBSVW#FCBayernSelfiepic.twitter.com/zm4jBHPxam
— FC Bayern English (@FCBayernEN) December 14, 2019
Bremen komst yfir á 24. mínútu en það reyndist skammgóður vermir. Bayern skoraði tvö mörk undir lok fyrri hálfleiks og bætti svo fjórum mörkum við í seinni hálfleik.
Rober Lewandowski skoraði tvö mörk fyrir Bayern en hann hefur skorað 29 mörk í 23 leikjum á tímabilinu. Bayern er í 4. sæti deildarinnar með 27 stig.
Borussia Dortmund, sem er í 3. sæti, vann öruggan útisigur á Mainz, 0-4. Þetta var þriðji sigur Dortmund í röð.
Marco Reus, Jadon Sancho, Thorgan Hazard og Niko Schulz skoruðu mörk Dortmund.
Hertha Berlin vann sinn fyrsta sigur undir stjórn Jürgens Klinsmann þegar liðið lagði Freiburg að velli, 1-0.
Úrslit dagsins:
Bayern München 6-1 Werder Bremen
Mainz 0-4 Dortmund
Köln 2-0 Leverkusen
Hertha Berlin 1-0 Freiburg
Paderborn 1-1 Union Berlin