Viðskipti innlent

Greiddi nærri þrjá milljarða fyrir Bókun

Kristinn Ingi Jónsson skrifar
Hjalti Baldursson, forstjóri og annar stofnenda Bókunar
Hjalti Baldursson, forstjóri og annar stofnenda Bókunar
Bandaríski bókunarrisinn TripAdvisor, sem rekur stærsta ferðavef heims, greiddi 23 milljónir dala, sem jafngildir ríflega 2,7 milljörðum króna, fyrir allt hlutafé í íslenska hugbúnaðarfyrirtækinu Bókun á síðasta ári, eftir því sem fram kemur í ársreikningi bandaríska félagsins sem var gerður opinber í síðasta mánuði.

Tilkynnt var um kaup TripAdvisor á Bókun, sem sérhæfir sig í þróun á hugbúnaði fyrir ferðaþjónustuna, í apríl í fyrra og var þá sérstaklega tekið fram að kaupverðið væri trúnaðarmál.

Seljendur voru stofnendurnir Hjalti Baldursson, sem fór með 45 prósenta hlut í Bókun, og Ólafur Gauti Guðmundsson, sem átti tæplega 32 prósenta hlut, auk þess sem Norvik, sem er í eigu Jóns Helga Guðmundssonar og fjölskyldu, seldi 24 prósenta hlut sinn í íslenska hugbúnaðarfyrirtækinu.

Norvik gekk inn í hluthafahópinn árið 2017 en áður áttu Hjalti, sem er forstjóri Bókunar, og Ólafur Gauti tæknistjóri félagið að fullu.

Bókun hefur vaxið hratt frá stofnun árið 2012 og er hugbúnaðar félagsins nú mest notaða sölu- og birgðakerfið í íslenskri ferðaþjónustu. Í tilkynningu vegna kaupanna var tekið fram að með kaupunum myndi TripAdvisor útvíkka vöruframboð sitt, með því að þjónusta ferðaþjónustufyrirtæki með rekstrar- og stjórnunarhugbúnaði, til viðbótar við að starfrækja stærsta dreifingarnet á heiminum fyrir ferðir og afþreyingu.

Höfuðstöðvar Bókunar eru áfram á Íslandi í kjölfar kaupanna og er stefnt að umtalsverðum vexti fyrirtækisins en starfsmenn þess voru um tuttugu talsins um mitt síðasta ár. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×