Þrefaldi heimsmeistarinn, Ayrton Senna er af mörgum talinn besti ökumaður til að sitjast undir stýri á Formúlu 1 bíl.
Brasílíumaðurinn lét lífið í Imola-kappakstrinum 1. maí árið 1994 aðeins 34 ára. Senna klessti Williams bíl sínum harkalega á vegg í Tamburello beygjunni á öðrum hring.
Ayrton hafði ekki svo mikið sem marblett á líkama sínum eftir áreksturinn. Hann lést af höfuðáverkum sem hann varð fyrir þegar að hjólabúnaður bílsins fór í hjálm hans.
Eftir slysið var öryggi í Formúlu 1 aukið til muna. Bílarnir þurftu að standast hærri öryggiskröfur og öryggisbúnaður ökumanna var aukinn.
Þá var líka nokkrum brautum breytt eftir slysið, meðal annars var Tamburello beygjunni breytt fyrir 1995 kappaksturinn á Imola.
Senna er þó ekki síðasti ökuþórinn til að láta lífið í Formúlu 1. Jules Bianchi lést sumarið 2015 af áverkum sem hann hlaut í slysi í japanski kappakstrinum árið 2014.
25 ár síðan Ayrton Senna lést
Bragi Þórðarson skrifar

Mest lesið

Schumacher skrifaði nafnið sitt á hjálm
Formúla 1


Uppgjörið: Afturelding - ÍBV 0-0 | Markalaust í nýliðaslagnum
Íslenski boltinn


Hundur hljóp inn á völlinn í leik Vestra og FH
Íslenski boltinn

Uppgjörið: Vestri - FH 1-0 | Daði Berg hetja Vestra
Íslenski boltinn


Slæmur dagur hjá Rauðu djöflunum á St. James Park
Enski boltinn


Mbappé sá rautt í sigri Real Madrid
Fótbolti