Dybala sá um Bologna

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Sigurmarkinu fagnað
Sigurmarkinu fagnað vísir/getty
Juventus heldur áfram að styrkja stöðu sína á toppi ítölsku úrvalsdeildarinnar en í dag heimsótti liðið Bologna.

Juventus tapaði illa í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í vikunni og það var enginn glæsibragur á spilamennsku liðsins í dag.

Þrátt fyrir það sigldu þeir sigrinum heim þar sem Paulo Dybala gerði eina mark leiksins eftir rúmlega klukkutíma leik en hann hafði skömmu áður komið inn af varamannabekknum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira