Birna Einarsdóttir var til tals í Bítinu á Bylgjunni í morgun, þar sem farið var um víðan völl. Yfirvofandi breytingar á bankastarfsemi heimsins báru á góma, rétt eins og þau skref sem Íslandsbanki hefur stigið til að auka áherslu á heimabanka, á kostnað hinna hefðbundnu útibúa. Í því samhengi benti Birna á að undanfarin 5 ár hafi heimsóknum fólks í útibú Íslandsbanka fækkað um 40 prósent, auk þess um 60 prósent fólks skipti nú kreditkortagreiðslum í gegnum netið.
Hún segir bankann því hafa séð „rosalegar breytingar“ og gerir ekki ráð fyrir öðru en áframhaldi á því á komandi misserum. Er það ekki síst vegna tilkomu nýrrar löggjafar sem auðveldar innreið annars konar bankastarfsemi eins og Vísir hefur áður fjallað um. Þannig muni þörfin fyrir hefðbundna banka breytast mikið.
Sjá einnig: Bankar þurfa að hugsa út fyrir kassann og endurskilgreina sig
Aðspurð um hvort ekki sé komið tilefni til að sameina einhverja af íslensku bönkunum segir Birna að það sé alveg vert að kanna þann möguleika, án þess þó að nefna banka í því samhengi. Því geti fylgt mikið hagræði.
„Það er alveg ljóst, en auðvitað myndi samkeppnin verða með aðeins öðruvísi hætti ef það yrði,“ segir Birna sem áætlar þó að hún þyrfti ekki að verða minni. „Ef farið yrði í sameiningu tveggja banka þá yrði bara að stilla þessu aðeins öðruvísi upp. Bankarnir tveir sem hugsanlega yrðu sameinaðir yrðu þá að selja eitthvað frá sér til þess að jafna þetta aðeins út.“
Helmingur sparist
Aðspurð um hvað slík sameining gæti sparað mikla fjármuni í íslenska bankakerfinu segist Birna áætla að það gæti sparað „alla vega helming af kostnaði annars bankans.“ Sú upphæð væri að öllum líkindum „margir milljarðar.“Þrátt fyrir þennan sparnað segir Birna að engin alvöru umræða eigi sér stað um slíka sameiningu. „Ég held að sé alveg tími til kominn að skoða hvað hægt er að gera til að samkeppnisstaðan myndi ekki skaðast mikið, stilla því svolítið upp,“ segir Birna. „Það er ekkert verkefni sem er í gangi en alveg eitthvað sem að sjálfsögðu ætti að skoða á einhverjum tímapunkti.“
Þessi hugmyndin var viðruð af þingmanni meirihlutans í upphafi árs. Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður Vinstri grænna, vildi þá að ríkisstjórnin kannaði möguleikann á sameiningu Landsbankans og Íslandsbanka áður en teknar verði ákvarðanir um sölu bankanna.
Ríkissjóður á 98 prósent í Landsbankanum og 100 prósent í Íslandsbanka. Í hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið er lagt til að stjórnvöld hefji undirbúning að sölu bankanna.
Spjallið við Birnu má heyra þegar um 1 klukkustund og 51 mínúta er liðin af þættinum hér að neðan.