Carrager: Sarri gaf skít í Hudson-Odoi Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 31. mars 2019 23:30 Hudson-Odoi í fyrsta leik sínum í byrjunarliði enska landsliðsins. vísir/getty
Jamie Carragher, fyrrverandi leikmaður Liverpool og álitsgjafi hjá Sky Sports, furðar sig á hversu illa Maurizio Sarri, knattspyrnustjóri Chelsea, fylgdist með Callum Hudson-Odoi í landsleikjahléinu. Hudson-Odoi lék sinn fyrsta landsleik þegar hann kom inn á sem varamaður í 5-0 sigri Englands á Tékklandi í undankeppni EM 2020 á föstudaginn í þarsíðustu viku. Hann var svo í byrjunarliði Englands gegn Svartfjallalandi og lagði upp eitt mark í 1-5 sigri enskra á mánudaginn var. Sarri sagðist aðeins hafa horft á 20 mínútur af leik Englands og Svartfjallalands og að Hudson-Odoi hafi ekki náð sér á strik á þeim tíma. Þau ummæli komu Carragher á óvart. „Það truflaði mig að hann skyldi segja þetta; að hann hafi bara horft á 20 mínútur og strákurinn hafi ekki einu sinni spilað vel þá,“ sagði Carragher. „Þetta var fyrsti landsleikurinn hans. Af hverju var hann ekki að horfa? Hann þurfti vissulega að fylgjast með mörgum leikmönnum en þeir eru flestir þekktar stærðir. Þetta er ungur strákur sem félagið er að berjast við að halda. Ekki gefa skít í fyrsta byrjunarliðsleikinn hans með landsliðinu sem var kannski hápunkturinn á ferli hans til þessa.“ Hudson-Odoi sat allan tímann á varamannabekknum þegar Chelsea vann Cardiff City í dag, 1-2. Hann hefur ekki byrjað deildarleik fyrir Chelsea og Sarri hefur verið gagnrýndur fyrir að nota strákinn sparlega. Bayern München hefur borið víurnar í Hudson-Odoi og óvíst er hvort hann verður áfram í herbúðum Chelsea.
Enski boltinn Tengdar fréttir Warnock sótillur: Besta deildin en verstu dómararnir Knattspyrnustjóri Cardiff City úthúðaði dómaratríóinu eftir tap velska liðsins fyrir Chelsea í dag. 31. mars 2019 15:58 Aron Einar lék allan leikinn í grátlegu tapi gegn Chelsea Cardiff City, með Aron Einar Gunnarsson innanborðs, situr í fallsæti í ensku úrvalsdeildinni og verður að fara að sækja stig. 31. mars 2019 14:45 Mest lesið Selfoss fór með sigur af hólmi á Laugardalsvelli Íslenski boltinn „Komnir með miklu fleiri stig en ég átti von á“ Handbolti „Varnarleikurinn var skelfilegur” Handbolti Dortmund kom til baka á meðan AC Milan og Chelsea unnu örugga sigra Fótbolti FH á toppinn eftir sigur í Garðabæ Handbolti Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Körfubolti Uppgjörið: Fram - Haukar 37-34 | Framarar gengu á lagið í síðari hálfleik Handbolti Virtist ætla að vaða í samherja sinn Fótbolti Dagskráin í dag: Meistarakeppni KKÍ, 50 milljón króna leikurinn og stórleikir í Bestu kvenna Sport Ísak Bergmann kom Düsseldorf til bjargar Fótbolti Fleiri fréttir Efast um dugnað og hugarfar Rashford Tímabilið búið hjá Rodri Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Sjá meira
Warnock sótillur: Besta deildin en verstu dómararnir Knattspyrnustjóri Cardiff City úthúðaði dómaratríóinu eftir tap velska liðsins fyrir Chelsea í dag. 31. mars 2019 15:58
Aron Einar lék allan leikinn í grátlegu tapi gegn Chelsea Cardiff City, með Aron Einar Gunnarsson innanborðs, situr í fallsæti í ensku úrvalsdeildinni og verður að fara að sækja stig. 31. mars 2019 14:45
Dagskráin í dag: Meistarakeppni KKÍ, 50 milljón króna leikurinn og stórleikir í Bestu kvenna Sport
Dagskráin í dag: Meistarakeppni KKÍ, 50 milljón króna leikurinn og stórleikir í Bestu kvenna Sport